-1.6 C
Selfoss

Kynning á S-listanum í Hveragerði 

Vinsælast

Samfylkingin og óflokksbundnir (X-S) bjóða nú fram í Hveragerði til sveitarstjórnarkosninganna í vor og var framboðslistinn kynntur á opnum kynningarfundi í húsi leikfélagsins, Austurmörk 23, laugardaginn 14. mars.

Listinn er skipaður öflugu fólki með fjölbreytta reynslu og þekkingu sem vill leggja sitt af mörkum til þróunar og áframhaldandi uppbyggingar Hveragerðisbæjar. Í starfinu framundan hjá S-listanum verður lögð áhersla á að fólk með ólíkar skoðanir og ólíkan bakgrunn geti fundið sér farveg og staðið saman með félagshyggju og jafnaðarstefnu að leiðarljósi.

S-listinn í Hveragerði er þannig skipaður:

  1. Birgitta Ragnarsdóttir,  tollamiðlari
  2. Þorsteinn Hjartarson, eldri borgari og fv. fræðslustjóri
  3. Maria Araceli, dans- og leiklistarkennari
  4. Guðmundur Benóný Baldvinsson, lagerstjóri
  5. Berglind Ósk Guttormsdóttir, leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi
  6. Arnar H. Halldórsson, verkfræðingur
  7. Árný Fjóla Ásmundsdóttir, leiðbeinandi í leikskóla og listakona
  8. Tómas Kristjánsson, sálfræðingur og lektor
  9. Kristín Lilja Thorlacius, bókasafns- og upplýsingafræðingur
  10. Halldór Grétar Einarsson, tæknistjóri
  11. Harpa Björnsdóttir, deildarstjóri og leikskólakennari
  12. Hjálmar Trausti Kristjánsson, bílstjóri
  13. María Arnardóttir,  myndlistarkona
  14. Ingibjörg Sigmundsdóttir, eldri borgari og fv. garðyrkjubóndi

Nýjar fréttir