0 C
Selfoss

Grétar Matt á Sviðinu – Eitthvað fyrir alla

Vinsælast

Selfyssingurinn og tónlistarmaðurinn Grétar Lárus Matthíasson, betur þekktur sem Grétar Matt eða Greddi Rokk, heldur tónleika og stígur á Sviðið á Selfossi 14. mars næstkomandi laugardag. Grétar gaf út plötu á síðasta ári sem ber titilinn Unbreakable og mun platan fá að njóta sín á tónleikunum.

Blaðamaður Dagskrárinnar náði á tal við Grétar um plötuna og tónleikana næsta laugardag.

Platan Unbreakable er fyrsta plata Grétars. Platan kom einnig út á vínil í takmörkuðu upplagi en seinustu eintökin verða seld á tónleikunum á Sviðinu. Platan er rokkplata í grunninn en tónlistin á henni er afar fjölbreytt.
„Það er svona ekki beint bara ein stefna á henni. Það er eitthvað fyrir alla á henni,“ segir Grétar.

Titill til systur sinnar

Titillagið á plötunni Unbreakable eða Óstöðvandi á sér mjög persónulega sögu. Grétar samdi lagið þegar hann var staddur í Svíþjóð með systur sinni sem þá var í meðferð við blóðkrabbameini. Hann fór þangað með henni sem stofnfrumugjafi og varð lagið til á hótelherbergi meðan á dvölinni stóð.

Plötuumslag á plötu Grétars, Unbreakable. Mynd: Aðsend.

„Systir mín er laus við krabbamein í dag. Lagið er tileinkað henni. Því hún er bara alveg unbreakable!,“ segir hann.

Tónleikarnir á Sviðinu

Á tónleikunum mun Grétar syngja og leika á gítar ásamt öflugri hljómsveit. Með honum á sviðinu verða Hálfdán Árnason á bassa, Jón Geir Jóhannsson á trommur, Jóhann Friðrik Karlsson á gítar, Sigurgeir Sigmundsson á pedal steel og gítar og Vignir Þór Stefánsson á hljómborð.
„Ég er búinn að hlakka mjög mikið til að flytja þetta hérna á Selfossi, þar sem ég bý nú hér“ segir Grétar.

Í laginu I wish I could á plötunni hans Grétars syngur kór Lindakirkju bakraddir og verður hluti af meðlimum kórsins að syngja bakraddir á tónleikunum.

Gestasöngvarar verða heldur ekki af verri endanum. Þar má nefna söngkonuna Guðrúnu Árnýju, sem margir þekkja úr fjölmörgum tónlistarverkefnum, og Sigríði Guðnadóttur sem meðal annars gerði garðinn frægan með laginu Freedom með Jet Black Joe.

Guðrún og Grétar hafa unnið mikið saman og eru meðal annars að taka upp nýtt dúettlag eftir Grétar. Lagið verður frumflutt á tónleikunum.

Við hverju mega gestir búast við á Sviðinu næsta laugardag?
„Gestir mega bara búast við að fá eitthvað fyrir sinn snúð,“ segir Grétar. „Það fá allir eitthvað fyrir sig og við lofum góðri stemningu. Við vonum bara að sjá sem flesta.“

Miðar á tónleikana eru fáanlegir á Tix.is.

Keupa miða:
Grétar Matt ásamt hljómsveit á Selfossi

SEG

Nýjar fréttir