1.1 C
Selfoss

Met skráninga erlendra þátttakenda í Hengil Ultra í sumar

Vinsælast

Mikil aukning hefur orðið í erlendum skráningum í Hengil Ultra 2026 og stefnir mótið í að verða alþjóðlegra en nokkru sinni fyrr. Nú þegar hafa 561 keppandi skráð sig til leiks og af þeim eru 247 erlendir þátttakendur, eða 44% heildarfjöldans. Þetta er mesti fjöldi erlendra hlaupara sem tekið hefur þátt í mótinu og staðfestir að Hengill Ultra hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eftirsóknarverður áfangastaður fyrir utanvegahlaupara víða að úr heiminum.

Vöxturinn hefur ekki aðeins þýðingu fyrir mótið sjálft heldur einnig fyrir ferðaþjónustu í Hveragerði og nágrenni. Erlendir þátttakendur koma ekki aðeins til að taka þátt í hlaupinu heldur dvelja einnig á svæðinu, nýta sér gistingu, veitingastaði, verslun og aðra þjónustu í bænum og nágrannasveitarfélögum. Þannig skapar viðburðurinn aukin umsvif í samfélaginu og styrkir stöðu Hveragerðis sem áhugaverðs áfangastaðar fyrir ferðamenn.

„Frá því að okkar hópur kom að verkefninu árið 2017 höfum við markvisst unnið að því að byggja upp hlaupið og ekki síður innviðina í kringum það, þannig að við gætum farið í fulla sókn á erlenda hlaupara. Okkur fannst eftir hlaupið í fyrra að við værum komin á þann stað eftir átta ára vinnu. Í ár erum við því í fyrsta sinn að vinna sérstaklega í markaðssetningu gagnvart evrópskum og kanadískum hlaupurum,“ segir Einar Bárðar, einn aðstandenda Hengils Ultra.

Rásmarkið í miðri Hveragerði. Það er alltaf mikil hátíðarstemmning í bænum þegar mótið stendur yfir enda fjölgar „íbúum“ um rúmlega tvö þúsund á meðan að mótið stendur yfir.

Hengill Ultra hefur frá upphafi byggt á þeirri hugmynd að sameina krefjandi hlaupaupplifun, einstaka náttúru og sterka tengingu við Hveragerði og svæðið í kring. Vaxandi alþjóðleg þátttaka bendir til þess að sú uppbygging hafi skilað árangri og að mótið sé í auknum mæli að vekja athygli utan Íslands.

Hlaupið fer fram í byrjun júní og býður upp á fjölbreyttar vegalengdir, allt frá 5 km upp í 106 km ultra-vegalengd, um eitt sérstæðasta hlaupumhverfi landsins. Með auknum fjölda erlendra þátttakenda og sterkri skráningarstöðu virðist ljóst að Hengill Ultra er að þróast í einn af áhugaverðari utanvegahlaupaviðburðum á Norðurlöndum, með jákvæðum áhrifum fyrir bæði hlaupasamfélagið og ferðaþjónustu á svæðinu.

Hengill Ultra fer fram í Hveragerði í byrjun júní og verður hlaupið haldið í fimmtánda sinn í ár. Fyrsta Hengil Ultra hlaupið fór fram árið 2012 og var þá skipulagt af hlaupagarpinum Pétri Frantzson. Frá þeim tíma hefur viðburðurinn vaxið jafnt og þétt og er í dag einn af þekktari utanvegahlaupaviðburðum landsins.

Nýjar fréttir