1.1 C
Selfoss

Framboðslisti Samfylkingar og óháðra í Árborg samþykktur

Vinsælast

Fjölmennur félagsfundur Samfylkingarinnar í Árborg samþykkti í gær einróma framboðslista Samfylkingar og óháðra vegna sveitastjórnarkosninganna þann 16. maí næstkomandi.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi leiðir listann og í 2. sæti er Margrét Björk Ólafsdóttir hjúkrunastjóri. Brynjar Þór Elvarsson stjórnsýslufræðingur skipar 3. sæti listans, Elísabet Björgvinsdóttir skemmtanastjóri, samfélagsmiðlastjóri og þjálfari er í 4. sæti, Árni Magnússon verkefnastjóri skipar 5. sæti, Elísabet Davíðsdóttir lögfræðingur skipar 6. sæti listans og Margrét K. Sverrisdóttir íslenskufræðingur skipar 7. sætið.

Framboðslistann skipa reynslumiklir einstaklingar sem sitja í bæjarstjórn Árborgar auk nýrra frambjóðenda sem nú stíga sín fyrstu skref í sveitarstjórnarmálum, fullir áhuga á að gera gott sveitarfélag enn betra.

Í hópnum eru einstaklingar með víðtæka þekkingu og reynslu víðs vegar að úr samfélaginu og spegla vel þá miklu breidd sem býr í ört vaxandi samfélagi. Listinn mun á næstunni kynna stefnumál sín.

Listinn hefur á að skipa sterkum hópi fólks sem vill leggjast saman á árarnar við að létta daglegt líf fólks. Svf. Árborg á að vera samfélag þar sem þjónusta og bæjarbragur standi undir væntingum íbúa. Við viljum taka ábyrgð á að byggja upp sveitarfélagið með skýrri sýn og góðu samstarfi við íbúa. Markmið okkar er að taka á þeim verkefnum sem blasa við og byggja upp sterkt og lifandi samfélag.

Framboðslisti Samfylkingar og óháðra í Árborg 2026:

  1. Sigurjón Vídalín Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni og bæjarfulltrúi.
  2. Margrét Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri.
  3. Brynjar Þór Elvarsson, stjórnsýslufræðingur.
  4. Elísabet Björgvinsdóttir, skemmtanastjóri, samfélagsmiðlastjóri og þjálfari.
  5. Árni Magnússon, verkefnastjóri.
  6. Elísabet Davíðsdóttir, lögfræðingur.
  7. Margrét K. Sverrisdóttir, íslenskufræðingur.
  8. Eva Gunnarsdóttir, skjalastjóri.
  9. Einar Sindri Ólafsson, jarðfræðingur
  10. Herdís Sif Ásmundsdóttir, kennari og hjúkrunarfræðingur.
  11. Linda Ásdísardóttir, sérfræðingur á Byggðasafni Árnesinga.
  12. Benoný Jónsson, líffræðingur, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og stöðvastjóri.
  13. Renuka Chareyre, starfsmaður í grunnskóla.
  14. Tinna Berg Rúnarsdóttir, leikskólakennari.
  15. Svala Norðdahl, lífskúnstner.
  16. Kristinn Hermannsson, rafvirki.
  17. Davíð Kristjánsson, vélvirki.
  18. Þorvarður Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri SASS.
  19. Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingiskona.
  20. Ástríður M. Sigurðardóttir, gæðastjóri.
  21. Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra.
  22. Arna Ír Gunnarsdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi.

Mynd:

(Samfylkingin í Árborg 1-2)

Nýjar fréttir