2.3 C
Selfoss

Framboðslisti T-listans samþykktur á fjölmennum fundi

Vinsælast

Framboðslisti T-listans í Bláskógabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur á fjölmennum fundi sem haldinn var í Efstadal í gærkvöldi. Á fundinum var tillaga uppstillinganefndar lögð fram og samþykkt samhljóða.

Á listanum er fólk með viðtæka reynslu, menntun og bakgrunn. Þá koma frambjóðendur víðsvegar að úr sveitarfélaginu og endurspegla því vel samfélagið í Bláskógabyggð.

Helgi Kjartansson, íþróttakennari og núverandi oddviti leiðir listann og í öðru sæti er Stefanía Hákonardóttir, verkfræðingur. Í þriðja sæti er Áslaug Alda Þórarinsdóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf, í fjórða sæti er Ísak Eyfjörð Arnarson viðskiptafræðingur og fimmta sæti er Kristján Einir Traustason, viðskiptalögfræðingur.

Eftirfarandi einstaklingar skipa listann:

  1. Helgi Kjartansson, kennari og oddviti
  2. Stefanía Hákonardóttir, verkfræðingur
  3. Áslaug Alda Þórarinsdóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf
  4. Ísak Eyfjörð Arnarson, viðskiptafræðingur
  5. Kristján Einir Traustason, viðskiptalögfræðingur
  6. Elías Bergmann Jóhannsson, kennaranemi
  7. Grímur Kristinsson, smiður og búfræðingur
  8. Anna Svava Sverrisdóttir, framkvæmdarstjóri
  9. Sveinn Ingi Sveinbjörnsson, vélvirki og bóndi
  10. Axel Sæland, blómabóndi
  11. Ewa Piatek, gróðurhúsastjóri
  12. Sindri Fannar Sigurbjörnsson, sjúkraflutningamaður
  13. Harpa Sævarsdóttir, sjúkraþjálfari
  14. Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, bóndi

Nýjar fréttir