Danski sýningahópurinn Verdensholdet kom til landsins á miðvikudagsmorgun 4. mars eftir langt ferðalag frá Suður-Ameríku og hélt beint til Selfoss. Þar var þeim tekið vel, meðal annars með léttum hádegisverði í Sunnulækjarskóla áður en þau kynntu sér aðstæður í fimleikasalnum og fóru að æfa.

„Það er geggjað að fá þessar flottu fyrirmyndir í Verdensholdet í fimleikasalinn. Þau eru svo opin og tilbúin að vera með okkur í öll því sem þarf og ná vel til iðkendanna,“ segir Bergþóra Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri fimleikadeildar Selfoss.
Verdensholdet heyrir undir DGI (Danmarks Gymnastik og Idrætsforeninger), sem eru eins konar systursamtök UMFÍ í Danmörku.
Fimleikahópurinn Verdensholdet samanstendur af 28 einstaklingum (14 konum og 14 körlum) auk þjálfara og starfsmanna og munu þau dvelja hér dagana 4.– 27. mars. Hópurinn er hér á landi á vegum UMFÍ, í samstarfi við Fimleikasamband Íslands (FSÍ) og fimleikafélög á ýmsum stöðum.
Selfoss er fyrsti áfangastaðurinn og var Sýning Verdensholdet á Selfossi var í íþróttahúsinuBaulu, laugardaginn 7. mars. Þaðan fer hópurinn til Akraness og Egilsstaða.
„Það hefur verið ótrúlega gaman að taka á móti þeim,“ segir Bergþóra. „Þau voru glöð að vera komin hingað eftir langt ferðalag og hafa þegar náð góðri æfingu í salnum hjá okkur. Þau fóru líka á æfingu í GYM 800 og í sundferð í Sundhöll Selfoss, sem sveitarfélagið Árborg bauð upp á. Í gær var þeim svo boðið í mat á sveitabæ sem einn þjálfarinn okkar á. Þar fengu þau saltkjöt, hangikjöt og svið og fleira að borða,“ bætir hún við og leggur áherslu á að stuðningur sveitarfélagsins og GYM 800 hafi verið mjög góður.
Ná vel til iðkenda
Verdensholdet hefur haldið vinnustofur fyrir iðkendur fimleikadeildarinnar á Selfossi. Í gær var vinnustofa með iðkendum á aldrinum 9 til 14 ára en á morgun verður vinnustofa fyrir eldri iðkendur fimleikadeildar Selfoss með meðlimum Verdensholdet.
„Það var mikil ánægja í vinnustofunni í gær,“ segir Bergþóra. „Þau ná rosalega vel til krakkanna og sýningarhópurinn sjálfur er mjög ánægður með viðtökurnar.“
Gista hjá íbúum
Verdensholdet-hópurinn hefur verið á ferðalagi um allan heim og leita meðlimir hans eftir því að gista hjá landsmönnum á hverjum stað. Það sama er uppi á teningnum á Selfoss. Af þessum sökum er hópurinn nokkuð dreifður á Selfossi en fær fínasta tækifæri til að upplifa íslenskt heimilislíf.
UMFÍ

