Leikfélag Menntaskólans að Laugarvatni frumsýnir í kvöld söngleikinn Gauragang, byggðan á hinni vinsælu skáldsögu eftir Ólaf Hauk Símonarson. Sýningar fara fram í Aratungu í Reykholti og er uppselt á frumsýningu í kvöld en leikhópurinn verður með sýningar út alla helgina.
Strákarnir Fannar Óli Ólafsson og Sigurður Emil Pálsson hafa séð um að setja upp leiksýninguna í allan vetur og fóru prufur fram í fyrrahaust.
Gauragangur segir sögu af ævi og ástum hins óuppgötvaða og óstýriláta snillings Orms Óðinssonar, sem er leikinn af Vésteini Loftssyni í sýningunni. Við fylgjumst með Ormi á meðan hann berst á móti skóla sem heldur sér niðri, fjölskyldu sem að metur hann ekki að verðleikum og verstu svikunum frá stelpunni sem að hann elskar.
Skáldsaga Ólafs Hauks Símonarssonar kom fyrst út árið 1988 og var í kjölfar þess gerður söngleikur sem var sýndur á sviði Þjóðleikshússins og seinna meir var gerð kvikmynd. Söngleikurinn inniheldur tónlist og byggir á lögum hljómsveitarinnar Nýdönsk sem margir þekkja vel.
Leikstjórn sýningarinnar er í höndum þeirra Óskars Snorra Óskarssonar, fyrrum nemanda skólans, og Sigríðar Ragnarsdóttur en þau eru bæði nemendur á leikarabraut við Listaháskóla Íslands.

Leikhópurinn samanstendur af 20 hæfileikaríkum leikurum, sex manna hljómsveit sem spilar undir, ásamt fjöldanum öllum af einstaklingum sem koma að sýningunni á bak við tjöldin, svo sem hár, smink, hljóðmenn og sviðsmenn. Allt eru þetta nemendur við Menntaskólann að Laugarvatni.
Æfingar hófust fyrst á Laugarvatni en hafa síðustu vikur farið fram á sviðinu í Aratungu. Sigurður og Fannar segja æfingarnar hafa gengið sífellt betur og betur með tímanum og að þeirra sögn er leikhópurinn afar þéttur, enda búa nemendurnir allir saman á heimavist við skólann. „Leikhópurinn nær mjög vel saman, við erum öll svo ótrúlega góðir vinir,” segja Fannar og Sigurður.
Hverju mega gestir búast við þegar þeir koma á sýninguna?
„Það má búast við algjörri stemningu og óútskýranlega mörgum tilfinningum, bæði glaðar og sorgmæddar.” Strákarnir eru spenntir að koma verkinu á svið fyrir framan áhorfendur eftir allan undirbúninginn og lofa þeir að enginn fari heim vonsvikinn.
Einstaklingar á öllum aldri eru hvattir til að mæta á Gauragang í Aratungu í Reykholti. Miðaverð er 4.500 kr. og frítt er inn fyrir 12 ára og yngri. Hægt er að næla sér í miða í gegnum tölvupóst ml.leikfelag@gmail.com og verður leiksýningin einungis sýnd þessa helgi, á föstudag og laugardag.
SEG





