4.5 C
Selfoss

Saman mótum við framtíð Hveragerðis

Vinsælast

Samfélagið í Hveragerði er einstakt. Það einkennist helst af fólki sem í sameningu vill bænum sínum aðeins það besta. Saga bæjarins er saga uppbyggingar sem var möguleg vegna samvinnu íbúanna. Hveragerði er lítið samfélag, Hér þekkist fólk, mætist í daglegu lífi og tekur sameiginlega ábyrgð á því hvernig samfélagið okkar þróast. Slík samfélög verða ekki til af sjálfu sér, þau verða til þegar fólk velur að leggja sitt af mörkum.

Ég ákvað að leggja mitt að mörkum og mun leiða D-listann í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Áherslur mínar í þessum kosningum eru skýrar: að vandað sé til verka í rekstri bæjarins með skýrri forgangsröðun, að styrkja þjónustu við íbúa á öllum aldri og að tryggja faglegar ákvarðanir og að fjármunum bæjarins verði vel varið.

Reynsla, ábyrgð og samstarf

Ákvörðunin byggir á sterkri tengingu við bæinn og þeirri sannfæringu minni að sveitarstjórnarmál eigi fyrst og fremst að snúast um að vinna með fólki að skýrum og ábyrgum lausnum.

Í gegnum störf mín hef ég unnið að verkefnum sem tengjast uppbyggingu Hveragerðis og starfsemi sveitarfélaga. Ég starfaði áður við frístundastarf í Hveragerði þar sem unnið var að því að styrkja umhverfi barna og ungmenna og þróa starfið til framtíðar. Sú uppbygging leiddi til tilnefningu starfsins til íslensku menntaverðlaunana fyrir faglega forystu. Síðar lá leið mín til Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem ég hef unnið að verkefnum sem tengjast stjórnsýslu sveitarfélaga og hagsmunum þeirra um allt land.Sú reynsla hefur gefið mér góða innsýn í hvernig sveitarfélög takast á við áskoranir, hvers vegna góð stjórnsýsla skiptir máli og hversu mikilvægt er að taka ákvarðanir út frá skýrri sýn og framkvæma þær af ábyrgð.

Skýr stefna til framtíðar

Hveragerði stendur frammi fyrir tækifærum til áframhaldandi uppbyggingar en einnig verkefnum sem krefjast skýrrar forgangsröðunar, faglegra vinnubragða og góðs samstarfs. Sveitarstjórnarmál snúast ekki eingöngu um stjórnsýslu eða skipulag heldur um fólk, samfélagið sem við viljum búa í og tækifæri fyrir íbúa á öllum aldri. Ég tel að góð sveitarstjórn einkennist af samstarfi, opnum samskiptum og málefnalegri umræðu.

Það er mikill heiður að fá að starfa með framboðslista D-listans í Hveragerði sem er skipaður öflugum hópi fólks með fjölbreytta reynslu úr samfélaginu. Markmið okkar er að vinna saman að skýrri stefnu fyrir næsta kjörtímabil og leggja áherslu á málefnalega umræðu, fagmennsku og ábyrgð  um þau verkefni sem skipta bæinn mestu máli.

Ég hlakka til að ræða við íbúa Hveragerðis á næstu vikum og vinna með listanum og samfélaginu í heild að því að móta skýra og ábyrga stefnu fyrir framtíð bæjarins.

Ingimar Guðmundsson,
Oddviti D-listans í Hveragerði

Nýjar fréttir