Félagsheimilið Fossbúð stendur við gamla Barnaskólann í Skógum neðan við Skógafoss undir Eyjafjöllum. Á sinni tíð var það byggt upp af íbúum Austur-Eyjafjallahrepps, hreppnum og félagasamtökum. Ríkið hafði einnig aðkomu vegna þess að nálægðin við Barnaskólann skapaði möguleika á að nýta húsið til skólatengdrar starfsemi. Ennþá eiga félög eignarhlut í Félagsheimilinu. Húsið stendur á leigulóð úr jörðinni Ytri- Skógum sem er í eigu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu að jöfnum hluta. Hún var gefin á sinni tíð undir skólarekstur í Skógum. Lóðaleigusamningurinn er undirritaður 20. des. 1991 og gildir til 50 ára. Hann er þinglýstur.
Eftir sameiningu sveitarfélaganna á svæðinu flyst þessi gjörningur til nýs sveitarfélags, Rangárþings eystra. Yfirstjórn breytist og færist fjær þeim sem byggðu húsið, íbúum Austur-Eyjafjallahrepps. Jafnhliða sameiningunni fækkar fulltrúum í sk. Héraðsnefnd sem fer með þessi málefni í Skógum og þar með losnar um tökin á framvindu mála hjá íbúum fyrrum Austur-Eyjafjallahrepps. Valdið færist á Hvolsvöll.
Skipulagsvaldið í Ytri- Skógum er í höndum Rangárþings eystra. Óafturkræf hræðileg mistök hafa verið gerð í skipulagsmálum á þessu svæði. Bílastæði sem eiga að þjóna Skógafossi voru sett niður á versta stað sem hægt var að finna á svæðinu. Þeim var hlammað niður á fallegasta græna blettinn sem eftir var, á gamla leikvöllinn neðan við Barnaskólann. Veginum sem áður lá að Barnaskólanum og svæði við Skógafoss, var rutt burt og einnig tekið svæði við hlið hans sem var það eina sem eftir var af ósnortnu landi. Þá voru tekin mörg falleg tré af svæðinu. Allt þetta varð að svörtu malbiki. Jafnvel áður en framkvæmdir hófust var sýnt að fyrirhugað bílastæði yrði of lítið. Nóg rými er fyrir bílastæði á miklu betri stað en það er norðan við Barnaskólann og Félagsheimilið Fossbúð. Þar var ráðgert að hafa bílastæðið fyrir margt löngu en það svæði er innan túngirðingar í Ytri- Skógum og þar hefur ekki verið leyft að snerta neitt. Hefði bílastæðið verið þar þá hefði gönguleiðin inn á svæðið neðan Skógafoss orðið örstutt og bílastæðið verið frítt frá öðrum lóðum. Eins og háttar til núna þá byrjar gjaldskylda á bílastæðinu áður en beygt er að Fossbúð. Hefur það gengið svo langt að gestir í erfisdrykkju sem haldin var í Fossbúð fengu sekt fyrir að mæta í erfisdrykkjuna. Fararstjórar, aðallega sem koma með hópa á rútum að Skógafossi, kvarta yfir langri gönguleið frá nýja bílastæðinu og að fossinum. Hefur jafnvel verið rætt um að hætta að koma þarna á rútum.
Núna virðist klúðrið vera að vaxa yfir höfuð ráðamanna á Hvolsvelli. Búið er að taka helming bílastæðanna af Fossbúð og rútum leyft að leggja þar og ætlunin er að taka lóðina sem fylgir henni og malbika undir fleiri bílastæði til útleigu. Má leiða að því líkur, ef af þessu yrði, að Fossbúð stæði eftir sem vegalaust eyland. Þar með væri endanlega búið að koma því svo fyrir að A.-Eyfellingar ættu ekkert athvarf til fundahalda eða annarra samkoma. Félagslegt hrun þessa gamla samfélags myndi blasa við. Því má velta fyrir sér hver tilgangurinn sé utan þess að græða á gjaldskyldunni. Það má láta sér detta í hug að einhver aðili bíði á hliðarlínunni til að fá Fossbúð, jafnvel sá sem ætlar sér að brjóta hana niður og byggja hótel á lóðinni.
Svona vinnubrögð sem eru andstæð þörfum og vilja heimamanna eru með öllu ólíðandi og verða að hætta þegar í stað.
Vigfús Andrésson


