0.1 C
Selfoss

Nýsköpun í Hvolsskóla

Vinsælast

Nemendur elsta stigs Hvolsskóla hafa unnið hörðum höndum að hópaverkefni síðustu vikur. Nýsköpunarverkefni Hvolsskóla er lagt fyrir á þriggja ára fresti og í ár var komið að því að leggja það fyrir í þriðja sinn. Verkefnið var unnið þvert á námsgreinar og unnu nemendur verkefni í ákveðnum þrepum sem leiddi að sýningu á nýrri vöru eða þjónustu.

Mánudaginn 16. febrúar var opið hús í Hvolnum þar sem gestir og gangandi gátu kíkt við og litið augum nýsköpun hjá 16 hópum. Nemendur stóðu sig vel við að kynna sína nýsköpun og margar sniðugar og hagnýtar hugmyndir litu dagsins ljós. Dómnefnd heimsótti alla bása og átti erfitt verkefni fyrir höndum, að velja þrjár bestu hugmyndirnar. Í dómnefnd voru Arnbjörn Ólafsson, eigandi og framkvæmdastjóri Geocamp Iceland, Freyr Friðriksson, stofnandi og eigandi KAPP ehf. og Sigurbjörg Fríða Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Southcoast Adventure. Úrslit fóru þannig að Græðum ehf, sem var hópur skipaður nemendum úr 9. bekk, hlaut viðurkenningu fyrir hugmynd sína að nýta ull sem áburð við uppgræðslu jarðvegar og plöntun trjáa. Annar hópur úr 9. bekk, Ferðatreyjur hlaut einnig viðurkenningu fyrir þá viðskiptahugmynd að leigja út treyjur fyrir fótboltaleiki innanlands sem utan. Að lokum hlaut hópur úr 10. bekk viðurkenningu fyrir forritið Snjallspjall, samfélags- og upplýsingamiðil fyrir 60 ára og eldri.

Nýsköpunarsýningin heppnaðist einkar vel og var gaman að sjá frumlegar hugmyndir nemenda verða lifandi og raunverulegar með góðum kynningum hópanna. Framtíðin er björt.

Nýjar fréttir