1.7 C
Selfoss

Framboðslisti frá Betri sveit

Vinsælast

Framboðslisti, Betri sveit – fyrir okkur öll mun bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Samvinna og virðing eru lykilforsendur þess að sveitarfélag verði góður staður til að búa í. Þegar íbúar, félagasamtök, atvinnulíf og stjórnvöld vinna saman að sameiginlegum markmiðum skapast samfélag þar sem fólk finnur til öryggis og ábyrgðar.

Markmiðið skal ætið vera að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð, leitast við að þjónusta sveitarfélagsins mótist af notendum hennar og taki mið af raunverulegum þörfum þeirra.Slíkt samfélag einkennist af trausti, virku samtali og sameiginlegri sýn á framtíðina.

Á listanum er fólk með fjölbreyttan og ólíkan bakgrunn sem öll eiga þá sameiginlegu sýn að vilja búa í öflugu, framsæknu og sanngjörnu samfélagi. Þekking er fjársjóður sem fylgir eiganda sínum hvert sem hann fer.

Hornsteinn hvers samfélags er fólkið sem það byggir, það á að vera gott fyrir okkur öll að búa og dvelja í Grímsnes- og Grafningshreppi.

  1. Andrés Bertelsen – Rekstrarstjóri.
    Herjólfsstíg, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  2. Ragna Ívarsdóttir – Athafnakona.
    Smámýrarvegi, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  3. Friðrik Guðmundsson – Aðstoðar vallarstjóri hjá Golfklúbbi Öndverðarness.
    Stóra-Hálsi, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  4. Viðar Marinósson – Löggiltur fasteignasali.
    Neðan – Sogsvegar, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  5. Gunnlaugur Ingimarsson – Rekstrarstjóri.
    Undirhlíð – Sólheimum, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  6. Sandra Gunnarsdóttir – Athafnakona.
    Djúpahrauni, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  7. Heimir Karlsson – Útvarpsmaður.
    Vaðnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  8. Sigríður Björnsdóttir – Skrifstofustjóri.
    Kiðhólsbraut, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  9. Lára V. Júlíusdóttir – Lögmaður.
    Hesti, Grímsnes- og Grafningshreppi.
  10. Guðjón Kjartansson – Sölumaður hjá Byko Selfossi.
    Vaðnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi.

Fréttatilkynning frá Betri sveit í Grímsnes- og Grafningshrepp

Nýjar fréttir