Það er löng og gróin hefð fyrir miðvikudagsmessum í litlu svörtu kirkjunni að Mosfelli á föstutímanum. Í ár er engin undantekning á því og á þessari föstu er alla miðvikudaga kl. 19.30 boðið upp á messu með sérstöku íhugunarefni og endað með kirkjukaffi og samtali á prestsetrinu.
11. mars, kl. 19.30, verður með okkur sr. Jóhanna Magnúsdóttir sóknarprestur í Vík í Mýrdal. Hún flytur erindið: „Hver er mestur í himnaríki? Hugleiðingar um sjálfsmynd og verðmæti manneskjunnar“. Sr. Jóhanna hefur áralanga reynslu af ráðgjöf, stjórnun og skólastarfi, auk þess að hafa þjónað sem prestur í Skálholti og á Sólheimum. Hún er því okkur hér í prestakallinu af góðu kunn. Kirkjukaffi á prestsetrinu. Innilega velkomin.


