Það er löng og gróin hefð fyrir miðvikudagsmessum í litlu svörtu kirkjunni að Mosfelli á föstutímanum. Í ár er engin undantekning á því og á þessari föstu er alla miðvikudaga kl. 19.30 boðið upp á messu með sérstöku íhugunarefni og endað með kirkjukaffi og samtali á prestsetrinu.
Miðvikudaginn 4. mars, kl. 19.30, verður með okkur Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður með meiru. Magnús Hlynur er landsmönnum öllum og sérstaklega Sunnlendingum þekktur, fyrir jákvæðar, manneskjulegar og hlýjar fréttir, hvar sem hann miðlar sínu efni. Hann ræðir við okkur um hvernig hægt er að taka eftir og sjá hið góða í samfélaginu, innan um allt það sem dregur niður og veldur angist. Kirkjukaffi á prestsetrinu. Innilega velkomin.


