-1.6 C
Selfoss

Starf félags eldri borgara á Selfossi

Vinsælast

Aðalfundur FebSel var haldinn fimmtudaginn 19. febrúar sl. í félagsmiðstöðinni í Grænumörk. Um 110 félagar mættu á fundinn og var fundurinn öflugur.

Fram fóru venjuleg aðalfundarstörf og að loknum kosningum var stjórn félagsins þannig skipuð:
Magnús J. Magnússon, formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir varaformaður, Margrét Jónsdóttir gjaldkeri, Brynhildur Geirsdóttir ritari, Valdimar Bragason meðstjórnandi og María Hauksdóttir og Gils Einarsson í varastjórn.

Ólafía Ingólfsdóttir, Ólafur Bachmann og Ólafur Sigurðsson sem hafa verið í stjórn undanfarin sex ár og Elín Jónsdóttir sem hefur verið í tvö ár létu af störfum og var þeim þakkað fyrir frábær stjórnarstörf undanfarin ár og leyst út með veglegum blómvöndum og hlýjum kveðjum.

Í lok aðalfundar steig Jón Ingi Sigurmundsson í pontu og afhenti félaginu málverk að gjöf. Formaður tók við málverkinu og voru Jóni færðar miklar þakkir.

Ljósmynd: Facebook/Félag eldri borgara, Selfossi.

Einnig ávarpaði Bragi Bjarnason fundinn og flutti okkur baráttukveðjur og þakkaði öflugt starf.

Í skýrslu stjórnar félagsins kom fram að starfsemin væri verulega öflug. Félagsmenn eru núna rúmlega 1000 og þeim fer fjölgandi!

Innan félagsins starfa hreyfihópar, spilahópar, myndlista- og ljósmyndahópar, keramik- og postulínshópar, leikhópur, kaffihópur, hannyrðahópar af öllum gerðum og tegundum, sönghópar og öflugur kór svo eitthvað sé talið. Einnig eru Karlarnir í Uppsölum öflugir. Farið hefur verið í leikhús og í ýmsar sumarferðir. Fram kom í skýrslum nefnda að starfið hafi verið öflugt.

Einnig var öflug afmælis- og árshátíð í tilefni 45 ára afmælis félagsins og 35 ára afmælis Hörpukórsins og aðventuhátíð félagsins sem nú var haldin í Grænumörkinni og tókst afar vel. Einnig voru myndlistasýningar og handverkssýningar í tengslum við Vor í Árborg.

Öflug opin hús eru alla fimmtudaga frá 14.45 – 16.00 þar sem margvíslegt efni af öllu tagi er flutt og notið veitinga sem kvenfélagið sér um.

Í vetur hefur starfsemin verið að aukast sem er gott. Reynt hefur verið að auka upplýsingaflæði til að auðvelda félagsmönnum að fylgjast betur með. Allar hugmyndir sem stjórninni berast um nýbreytni í starfseminni eru skoðaðar og reynt að prófa.

Á fjölmennustu uppákomum hefur verið á mörkunum að koma öllum fyrir þannig að ef fjölgar verulega í félaginu þarf að fara að skoða þau mál.

En félagið er öflugt og stefnir bara upp á við í starfsemi sinni og vonum við að komandi starfsár verði okkur öllum ánægjulegt.

Magnús J. Magnússon

Nýjar fréttir