Matgæðingur vikunnar er María Ósk Ólafsdóttir.
Takk fyrir áskorunina elsku Ástrós, ég er alveg búin að bíða eftir að fá þessa áskorun en stúss í eldhúsinu er alveg uppáhalds á þessu heimili og pínu mín gæðastund að elda og hlusta á hljóðbók, en óhætt er að segja að allir hér á bæ elski að elda og elski að borða.
Ég ætla að deila uppskrift að Tacoböku sem er mjög vinsæl á þessu heimili og okkar útgáfu af skyrköku, með bestu grísku jógúrtunni.
Tacobaka
Botn
- 4 dl. hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1/2 tsk. salt
- 50 gr. smjör
- 1 1/2 dl. mjólk
Fylling
- 500 gr. nautahakk
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 3 msk. tómatpuré
- 2 msk. chillisósa
- 1 msk. sojasósa
- 2 tsk. chilipipar (krydd)
- 2 tsk. cummin
- 2 tsk. kóríander (krydd)
- 2 tsk. karrý
- 1-2 tsk. salt
- 2 dl. vatn
Ofanlag
- 3 tómatar
- 2 dl. sýrður rjómi
- 4 msk. majónes
- 150 gr. rifinn ostur
Hitið ofninn í 180°C. Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál. Látið smjörið ná stofuhita, skerið það í bita og blandið því við þurrefnin. Bætið mjólkinni saman við og hrærið öllu saman í deig. Þrýstið deiginu í bökuform eða smelluform. Það þarf ekki að forbaka botninn.
Saxið lauk og steikið aðeins, bætið fínt hökkuðum hvítlauk við. Setjið nautahakkið saman við og steikið þar til nautahakkið er ekki lengur rautt. Bætið tómatpuré, chillisósu og sojasósu á pönnuna ásamt kryddunum og vatni. Látið sjóða við vægan hita þar til vatnið er næstum horfið, ca 10-15 mínútur. Smakkið til og kryddið meira ef þarf. Setjið nautahakkið yfir botninn.
Skerið tómatana í bita og dreifið yfir nautahakkið.
Hrærið saman sýrðum rjóma, majónesi og rifnum osti og breiðið yfir tómatana.
Bakið í miðjum ofni í ca 15 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og hefur fengið fallegan lit.
Heimagert Guacamole
2 avakado stöppuð með gaffli
2 hvítlauskrif pressuð
Dass af guacamole mix
Öllu hrært saman.
Berið fram með góðu salati, nachos, sýrðum rjóma, salsa og guacamole.
Grískjógúrtterta með kirsuberjasósu
1 pakki Lu kanilkex
50 gr. smjör
1 peli af rjóma
500 gr. Biobú grískjógúrt með vanillu
2 msk. flórsykur
1 tsk. vanilludropar
Kirsuberjasósa
Myljið LU-kexið í matvinnsluvél og hellið því í kringlótt form.
Bræðið smjörið og hellið yfir kexið. Þeytið rjómann og hrærið skyrinu vel saman við ásamt flórsykri og vanilludropum.
Smyrjið því svo jafnt yfir kexblönduna. Í lokinn er kirsuberjasósunni hellt yfir allt.
Kælið tertuna inni í ísskáp þar til hún er borin fram.
Ég skora á Elínu Karol vinkonu mína og samstarfskonu að koma með næstu uppskrift. Við höfum bara fengið góðan mat þegar við förum í mat til hennar og Andys.

