5.6 C
Selfoss

Bæjarmálafélagið Áfram Árborg býður ekki fram

Vinsælast

Bæjarmálafélagið Áfram Árborg býður ekki fram fyrir sveitarstjórnarkosningar árið 2026.

Félagið var stofnað árið 2018 af Pírötum, Viðreisn og óháðum og náði inn einum manni í sveitarstjórnarkosningunum 2018. Þá unnum við með Samfylkingunni, Framsóknarflokk og Miðflokki í meirihluta allt kjörtímabilið. Við náðum aftur inn manni í kosningunum 2022 og  höfum verið í meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðisflokknum frá því í júní 2024.

Það hefur hvergi skugga á borið í samstarfinu með Sjálfstæðisflokknum og viljum við sérstaklega þakka þeim fyrir gott samstarf.

Félagið hefur frá upphafi haft á stefnuskrá sinni virkt íbúalýðræði, vönduð vinnubrögð, gagnsæi og betri upplýsingar með opnari stjórnsýslu, fjárhagslega sjálfbærni og ábyrga meðferð skattfés. Við höfum lagt áherslu á málefni fjölskyldna og lagt okkur sérstaklega eftir að hlusta á ungt fólk í gegnum Ungmennaráð, eldra fólk í gegnum Öldungaráð og málefni minni byggðakjarna í gegnum hverfisráð. Við höfum beitt okkur sérstaklega í skipulagsmálum, skólphreinsun, mennta- og menningarmálum og verið virk í umhverfismálum.

Við höfum náð árangri og horfum um öxl með stolti á tíma okkar of áhrif í bæjarstjórn. Bættur fjárhagur eftir erfiða vaxtaverki, nýtt aðalskipulag, betri áætlanagerð og verklag. Þá er blómstrandi menning og listir um allt sveitarfélagið, umbætur í skólastarfi, m.a. stofnaður Hjallastefnuleikskóli. Ný hreinsistöð er að verða tilbúin sem og Stekkjaskóli, Selfosshöllin var byggð og opið bókhald er komið á vefsíðu sveitarstjórnar. Uppbygging innviða eftir ótrúlega íbúafjölgun í sveitarfélaginu hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en á þessu kjörtímabili, ekki síst fjárfestingar í orkuöflun. umbætur í velferðar- og aðgengismálum,regluleg upplýsingagjöf og betri tölfræði. Við höfum haldið íbúum upplýstum með íbúafundum um ýmis málefni og tryggt að farið var eftir vilja íbúa í íbúakosningum. Við getum tínt fleira til en látum þetta nægja.

Við viljum þakka íbúum Árborgar kærlega fyrir traustið sem okkur hefur verið sýnt frá árinu 2018. Við viljum einnig þakka samstarfsfólki í bæjarstjórn, nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir gott samstarf.

Við þökkum Viðreisn kærlega fyrir samstarfið í Áfram Árborg undanfarin 8 ár og  óskum þeim velfarnaðar í komandi kosningum.

F.h. Bæjarmálafélagsins Áfram Árborgar,
Álfheiður Eymarsdóttir, bæjarfulltrúi Á lista, varaformaður bæjarráðs og varaformaður eigna- og veitunefndar.

Nýjar fréttir