3.4 C
Selfoss

Bragi Bjarnason mun áfram leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Árborg  

Vinsælast

Bragi Bjarnason bæjarstjóri leiðir áfram lista Sjálfstæðismanna í Árborg í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. en nöfn sex efstu á listanum hafa nú verið birt.

Ákveðið var á fjölmennum fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Árborg að falla frá fyrirhuguðu prófkjöri og viðhafa uppstillingu. Á fundinum var einnig samþykkt einróma röðun efstu sex sætanna á listanum.

Nöfn sex efstu eru eftirfarandi:

  1. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri.
  2. Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs.
  3. Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri.
  4. Brynhildur Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi og bæjarfulltrúi.
  5. Þórhildur Ingvadóttir, móttökuritari.
  6. Kjartan Björnsson rakari og forseti bæjarstjórnar Árborgar.

„Það er ánægjulegt með hvernig til tókst við uppstillinguna þar sem eru í bland núverandi sveitarstjórnarmenn og nýliðar,” sagði Guðmundur Ármann Pétursson, formaður fulltrúaráðs, um málið.

Framundan er röðun sæta á listann til fulls og er búist við því að því verði lokið í næstu viku, en alls eru 22 fulltrúar sem sitja á framboðslistum í Sveitarfélaginu í Árborg.

„Þetta er ákaflega samstíga og öflugur hópur sem samanstendur af bæði reyndu fólki og nýju sem er reiðubúið til að halda áfram því góða starfi sem við í D-listanum höfum unnið hér á líðandi kjörtímabili,“ segir Bragi Bjarnason, oddviti listans.

Fyrri grein

Nýjar fréttir