-3.3 C
Selfoss

Viðar Örn er kominn heim

Vinsælast

Framherjinn Viðar Örn Kjartansson hefur skrifað undir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Umf. Selfoss.

Viðar Örn Kjartansson hefur komið víða við á sínum magnaða knattspyrnuferli síðan hann spilaði með Selfossi síðast árið 2012. Hann hefur skorað yfir 200 mörk á sínum ferli og spilað í Noregi, Kína, Svíþjóð, Ísrael, Rússlandi, Grikklandi, Tyrklandi og Búlgaríu. Hann spilaði nú síðast með KA í Bestu deildinni.

Samhliða því að leika með liðinu mun Viðar sækja sér menntun sem knattspyrnuþjálfari og hefja þá vegferð með félaginu að koma inn í það öfluga starf sem í deildinni er unnið. Það verður því spennandi að sjá hvernig áhrif Viðars muni vera á deildina innan sem utan vallar.

„Viðar hefur flutt búferla sína á Selfoss og lá því beinast við að taka slaginn með uppeldisfélagi sínu. Á traustum grunni mun hann halda áfram þeirri vegferð sem hófst seint á síðasta ári. Með markvissri þjálfun andlegri- og líkamlegri er knattspyrnudeild Selfoss ekki í nokkrum vafa um að innkoma hans í liðið hafa jákvæð áhrif á árangur liðsins á komandi árum,” segir Þorsteinn Haukur Harðarson formaður meistaraflokksráðs karla.

Knattspyrnudeild Selfoss hlakkar til samstarfsins og bindur miklar vonir við að innkoma Viðars muni hafa jákvæð áhrif til framtíðar fyrir alla aðila.

Nýjar fréttir