„Stutt til kosninga“ – Frasi sem gjarnan er gripið til og oft í þeim tilgangi að gera lítið úr góðu verki
Smá pæling varðandi umræðuna sem maður heyrir gjarnan þegar minnst er á síðasta útspil sveitastjórnar Ölfuss.
Undanfarið hef ég séð umræðu um að ýmsar aðgerðir sveitarfélagsins séu gerðar af því að „stutt sé til kosninga“. Ég verð að viðurkenna að ég á erfitt með að taka slíku bókstaflega. Ekki vegna þess að það sé ekki sannleikskorn í því heldur, þvert á móti vegna þess að þegar ég horfi á heildarmyndina þá finnst mér skýringin einfaldlega ekki standast (allavega í þetta sinn). Allt bendir til þess að ástæðan að baki aðgerðanna byggi miklu frekar á sterkri stöðu sveitarfélagsins sem síðan opnar á tækifæri til að láta íbúa þess njóta.
Þjónustukönnunin sýnir jákvæða mynd
Þegar niðurstaða þjónustukönnunar Gallup kom út tók ég eftir umræðunni sem fylgdi en ítrekað var gert lítið úr marktæki könnunarinnar. Mér fannst athyglisvert og ánægjulegt að sjá sveitarfélagið yfir meðaltali í öllum flokkum og skora sérstaklega vel í níu af þrettán þáttum. Þetta segir mér að margt í grunnþjónustunni sé að ganga vel, þó auðvitað sé alltaf hægt að gera betur. Þetta gefur að minnsta kosti ekki mynd af sveitarfélagi sem „reynir að bjarga sér“ rétt fyrir kosningar.
Reksturinn skapar raunverulegt svigrúm
Ég hef fylgst með rekstrartölum undanfarin ár, og þær hafa verið jákvæðar. Bæjarfélagið hefur vaxið, reksturinn verið sterkur og útkomuspáin fyrir 2025 gerir ráð fyrir verulegum afgangi. Fyrir mér segir þetta að það séu til raunverulegir peningar, raunverulegt svigrúm og raunverulegar forsendur til að gera breytingar sem gagnast íbúum. Af hverju að bíða þar til eftir kosningar, nema þú sért í grunninn á móti aðgerðinni, segð þú mér?
Gjaldfrjálsir leikskólar–ákvörðun sem skiptir máli
Ég hef ekki alltaf verið á þessari skoðun en það skiptir máli í hvernig umhverfi maður er. Þess vegna, nú og hér, miðað við stöðu sveitarfélagsins, finnst mér ákvörðunin um að gera leikskóla gjaldfrjálsa (36 tíma) eðlileg. Verð ég líklega að upplýsa hér að ég er ekki 100% hlutlaus (nú urðu margir hissa 😊)…
Ég er jú afi og þessi aðgerð skiptir máli fyrir fjölskylduna mína.
Hún styrkir ákvörðun afkomenda minna um að flytja hingað í Ölfus til að vera nær afa og ömmu (vona ég og trúi). Þetta eru því ekki bara tölur í rekstrarskýrslu; þetta eru aðgerðir sem hafa raunveruleg áhrif á líf þeirra sem eru að og vilja byggja sér framtíð hér í Ölfusi. Það hefur sjaldan verið erfiðara fyrir ungt fólk að eignast sína fyrstu íbúð og barnafjölskyldur bera þyngri byrðar en oft áður og því skiptir svona stuðningur miklu.
Aðgerðir af styrk, ekki af neyð
Ef reksturinn væri í ólagi og skuldir að hlaðast upp myndi ég skilja og jafnvel vera sammála gagnrýni um tímasetninguna á þessum aðgerðum. Þá væri sérstakt að taka svona stórar ákvarðanir rétt fyrir kosningar. En þegar sveitarfélagið stendur vel fjárhagslega og þjónustan kemur vel út í könnunum finnst mér eðlilegra að líta á þessar aðgerðir sem afleiðingu af góðum rekstri fremur en pólitískum „leik“.
Fyrir mér snýst þetta um forsendur, ekki dagatalið
Tel ég að meta eigi ákvarðanir út frá innihaldinu og þeim gögnum sem liggja fyrir, ekki bara út frá því hvar punkturinn er staddur á kjörtímabilinu. Ef eitthvað er rétt, gagnlegt og fjárhagslega fært, þá ætti ekki að hindra framkvæmdina vegna þess að kosningar eru í nánd.
Íbúar eiga að njóta góðs af sterkum rekstri þegar hann er til staðar. Og ég persónulega sé hversu miklu það getur skipt.
„Stutt til kosninga“ er jú bara frasi sem gjarnan er gripið til og oft í þeim tilgangi að gera lítið úr góðu verki.
Páll Marvin Jónsson
Íbúi í Þorlákshöfn

