-3.3 C
Selfoss

Gjaldfrjálst í leikskóla frá og með næstu mánaðarmótum

Vinsælast

Bæjarráð Sveitarfélagsins Ölfuss samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 19. febrúar að gera leikskóla sveitarfélagsins gjaldfrjálsa frá og með næstu mánaðamótum.

Með ákvörðuninni verður öllum börnum boðin allt að 36 klukkustunda leikskóladvöl á viku án gjaldtöku, óháð tekjum foreldra. Byggir ákvörðunin á sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og hagstæðri rekstrarþróun undanfarinna ára.

Samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 1.346 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Íbúar sveitarfélagsins eru nú rúmlega 3.000 og hefur íbúafjölgun numið 4% til 6,5% á ári undanfarin ár.

Markmiðið með breytingunni er að styðja við barnafjölskyldur og tryggja að góður rekstrarárangur skili sér beint til íbúa í formi bættrar þjónustu.

„Sveitarfélagið Ölfus ætlar að vera í fararbroddi í þjónustu við ungt fólk og börn þeirra. Þessi kynslóð stendur í dag frammi fyrir áður óþekktum aðgangshindrunum á húsnæðismarkaði, meiri skuldsetningu og þyngri greiðslubyrði. Verðbólga og vextir eru að hækka sem þyngir stöðu þeirra enn frekar í samanburði við þá sem eru eldri. Þau eru oftar í leiguhúsnæði og með hærri lán miðað við tekjur. Sveitarfélagið Ölfus er vel rekið og hefur burði til að þess að styðja við bakið á þeim. Við höfum unnið einbeitt að því að draga úr lóðakostnaði, bjóða upp á heimagreiðslur, bæta íþróttaaðstöðu, fjölga leikskólum, hækka tómstundastyrki og fleira. Nú tökum við næsta skref og bjóðum upp á gjaldfrjálsan leikskóla. Hér er velferðin sótt á grundvelli verðmætasköpunar og góður rekstrarárangur á að skila sér beint til íbúa í formi lægri gjalda, aukinnar þjónustu og bættra lífsgæða,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfusar.

Nýjar fréttir

Viðar Örn er kominn heim

TÆKNI og tæknifötlun

Stutt til kosninga

Gómsæt gúllassúpa