Næsta fimmtudag, 26. febrúar, verður blásið til hraðstefnumóts á Miðbar þar sem einhleypir fá tækifæri til að kynnast á léttan og skemmtilegan hátt. Kvöldið verður í höndum Elisabetar Björgvins, eða Betu skemmtanastjóra eins og flestir þekkja hana, sem tekur á móti gestum og stýrir kvöldinu.
Hraðstefnumót, eða speed dating, er þekkt um allan heim sem einföld og árangursrík leið til að hitta nýtt fólk. Hugmyndin er einföld: stutt, tímasett samtöl þar sem þátttakendur fá nokkrar mínútur til að kynnast áður en skipt er um sæti. Engin pressa, engar langar og vandræðalegar þagnir, bara skýr rammi og góð stemning.
„Fólk heldur stundum að þetta sé vandræðalegt, en það verður akkúrat öfugt,“ segir Beta. „Þegar allir eru í sömu stöðu og leikreglurnar eru skýrar verður þetta miklu léttara. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman og kynnast nýju fólki.“
„Það hlýtur að vera fjöldi einhleypra á Selfossi og nágrenni sem eru til í að prófa eitthvað nýtt. Þetta er öruggur og skipulagður vettvangur til að brjóta ísinn og hafa gaman.“
Beta leggur áherslu á að kvöldið verði afslappað og hlýlegt. „Við byrjum á að fara yfir reglurnar, svo sjáum við um að para fólk saman og halda flæðinu gangandi. Hver veit nema úr þessu verði vinátta, pör að myndast eða jafnvel hjónabönd, það kemur bara í ljós.“
„Af hverju ætti Selfoss ekki að prófa það sem hefur virkað svo vel víða erlendis?“ segir Beta og brosir.
Það stefnir því í spennandi og skemmtilegt kvöld á Miðbar þar sem einhleypir fá tækifæri til að taka sénsinn og kannski breyta lífi sínu með einu stuttu hraðstefnumóti.

