Bókabæirnir austanfjalls og Brimrót standa fyrir upplestri og umfjöllun um ævisögur og nýjar bækur þeirra Einars Más Guðmundssonar og Þórunnar J. Valdimarsdóttur á Fjöruborðinu á Stokkseyri 22. febrúar kl. 15.
Báða höfunda þarf vart að kynna fyrir íslenskum lesendum. Þau hafa verið starfandi seinustu áratugi og sent frá fjölda ritverka af öllum sortum og gerðum.
Þórunn er frábrugðin Einari í því að vera menntaður sagnfræðingur og hefur gefið út fræðileg verk meðfram skáldsögum og ljóðum. Sérstaklega hefur hún gefið sig að því að rita ævisögur, Snorri á Húsafelli, Jakob Frímann Magnússon, Skúli fógeti og Matthías Jochumson svo einhverjir séu nefndir. Hún hefur líka skrifað bækur byggðar á ævi forfeðra sinna og móður og í nýjustu bókinni í þeim flokki, Stúlka með fálka, setur hún sjálfa sig sjötuga í miðju frásagnarinnar.
Þórunn lítur yfir farinn veg, stiklar á stóru yfir merkisviðburði, árangur, mótlæti og sorgir en eiginmaður Þórunnar, Eggert Þór Bernharðsson, varð bráðkvaddur 2014. Fyrst og fremst er frásögnin gáskafull og flæðandi og Þórunn býður lesandanum upp í samtal sem er persónulegt og margslungið.
Bækur Einars Más Guðmundssonar hafa oft verið byggðar á hans ævi. Hann sækir drjúgt í sinn samtíma og er óhræddur við að fjalla um sjálfan sig í því samhengi líka. Hann hefur líka fjallað um ævi forfeðra sinna í þríleiknum Fótspor á himnum, Draumar á jörðu og Nafnlausir vegir. Þroskasagan Passamyndir frá 2017 fjallar líka um ævi Einars og þar, líkt og í nýjustu bók Einars, Allt frá hatti oní skó er söguhetjan Haraldur byggður á Einari sjálfum og hér fylgjum við honum þar sem hann er að stíga sín fyrstu skrefi á rithöfundaferlinum í Kaupmannahöfn. Þar er hringiða nýrra hugmynda, ný tónlist, ný list, nýjar bækur og allt svo nýtt sem mótar ungan höfund.
Þórunn og Einar Már lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum, svara spurningum og velta fyrir sér ævisögum, sjálfsævisögum og skáldaævi yfirleitt.

