Matgæðingur vikunnar er Ástrós Rún Sigurðardóttir.
Takk Elín mín fyrir áskorunina, mér finnst nú voða gott að koma til þín í kaffi eða mat.
Mér leiðist nú ekkert að elda, því „reglan“ á mínu heimili er sú að sá sem eldar þarf ekki að ganga frá. Það er miklu skemmtilegra að elda.
Mér finnst ansi notalegt að elda matarmiklar súpur og fer þá ekkert endilega eftir uppskrift. Hér er ein skotheld, en það er mjög mikilvægt að mínu mati að nota cumin í súpuna og skera sætu kartöflurnar í litla teninga.
Súpuna er líka hægt að gera með nautahakki í stað gúllas, stundum sleppi ég rjómanum og nota heinz-chili sósu. Með súpunni er best að hafa nýbakað brauð og hvítlaukssmjör sem ég kaupi í Nettó.
Gott leynitrix hér á bæ er að eiga frosnar pizzadeigskúlur í frysti og þegar ég hendi í góða súpu er gott að þýða 2-3 kúlur, hnoða þær saman við gott ítalskt krydd og nokkur hvítlauksrif. Látið það hefast í smá stund, móta í góðan brauðhleif og baka svo í ofninum og borða það nýbakað með súpunni.
Gúllassúpa – Uppskrift fyrir fimm til sex manns c.a.
700 gr – 1 kg. nautagúllas
2 msk. ólífuolía
3 hvítlauksrif, marin
1 meðalstór laukur, smátt skorinn
2 rauðar paprikur, smátt skornar
2-3 gulrætur, smátt skornar
1 sellerístöng, smátt skorin
1 msk. fersk söxuð steinselja
5 beikonsneiðar, smátt skornar (má sleppa)
1 ½ l vatn
2 stk. nautakraftsteningar
1 dós niðursoðnir tómatar (hakkaðir)
1 msk. tómatpúrra
1 – 2 meðalstórar sætar kartöflur, skornar í litla bita
1/2 ltr. matreiðslurjómi eða slatti af rjómaosti
Salt og pipar, magn eftir smekk
1 tsk. cumin krydd (ath. Cumin er oft ruglað saman við kúmen)
1 msk. paprikuduft
Aðferð:
Hitið olíu við vægan hita í potti og mýkið hvítlauk og lauk í smá stund.
Bætið nautakjötinu, paprikum, gulrætum, selleríi, steinselju og beikoni saman við og brúnið í 5 – 7 mínútur.
Bætið vatninu og teningum saman við, hrærið vel í.
Setjið tómatana, tómatpúrru og sætar kartöflur ofan í súpuna.
Kryddið til með salti, pipar, paprikukryddi og cumin.
Leyfið súpunni að malla í klukkustund (eða lengur) við vægan hita.
Berið súpuna fram með brauði, hvítlaukssmjöri og sýrðum rjóma.
Ég skora á Maríu Ósk vinkonu mína og samstarfskonu að koma með næstu uppskrift. Hún og maðurinn hennar, Hlynur, eru miklir matgæðingar og snillingar í eldhúsinu.

