Sunnudaginn 1. febrúar stóðu listamenn úr Myndlistarfélagi Árnessýslu saman að afar vel heppnaðri styrktarsýningu til stuðnings Hinriki Sjørup og fjölskyldu hans.
Hinrik er 10 ára drengur frá Selfossi sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð með foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti.
„Dagurinn fór fram úr björtustu vonum, hátt í 400 gestir lögðu leið sína á vinnustofu félagsins og yfir 100 listaverk seldust,“ segir Berglind Björgvinsdóttir, formaður Myndlistarfélags Ársessýslu, í samtali við Dagskrána. Á viðburðinum söfnuðust yfir 2 milljónir króna sem renna óskertar til fjölskyldunnar.
Félagsmenn sem störfuðu á staðnum tóku á móti gestum, aðstoðuðu við kaup málverka og greiðslur og með þeim hætti náðum við að halda utan um söluna. Á sama tíma og fólk gekk frá kaupum á staðnum streymdu pantanir inn í gegnum heimasíðu félagsins. Félagsmenn á staðnum hlupu á milli, merktu verk með rauðum doppum um leið og þau seldust og héldu utan um flæðið af fagmennsku og hlýju. Sérstakar þakkir fá þau fyrir sína vinnu.

Nær öll verkin kláruðust og þegar fór að gisna á veggjunum brugðust listamenn við, sóttu fleiri verk og fylltu í rýmin og þau verk seldust einnig.
„Andrúmsloftið var einstakt og samstaðan áþreifanleg. Ég sem formaður er svo stolt af öllum þeim félagsmönnum sem gáfu verk og hjálpuðu til,“ segir Berglind.
Amma Charlotte og afarnir hans Hinriks, þeir Eiríkur og Ólafur, mættu ásamt systkinum hans Lenu Sif og Elímar Sjørup. Bekkjasystkini Hinriks úr Vallaskóla mættu einnig og tóku vaktir til að selja verk sem þau höfðu gert sjálf til styrktar Hinriks bekkjarbróður sínum.
„Þau fengu að upplifa þetta fallega framtak af eigin raun, sem gerði daginn enn merkingaríkari fyrir alla viðstadda og okkur félaginu þótti mjög vænt um að fá þau og allt fólkið í kringum Hinrik Sjørup.“

Sérstakar þakkir fær Grétar Matt sem lék ljúfa tóna fyrir gesti og skapaði dýrmætt andrúmsloft. Hann söng og spilaði allan tímann fyrir utan stutt stopp á meðan handboltaleikurinn var, einungis til að borða smá veitingar sem félagið var með fyrir þá sem voru að hjálpa til á þessum fallega viðburði.
Hann Grétar lagði einnig sitt af mörkum með því að gefa fimm vínylplötur af nýrri plötu, Unbreakable, og rann allur ágóðinn óskertur til Hinriks og fjölskyldu. Titillagið, Unbreakable, samdi hann til heiðurs systur sinnar í baráttu við krabbamein, og átti lagið djúpa samleið með deginum. Skilaboðin voru skýr: Hinrik er óbrjótandi, unbreakable. Hann mun sigra þessa baráttu.
„Við fengum símtal frá Hinriki sjálfum og tók Grétar Matt lagið það geta ekki allir verið gordjöss fyrir hann og hvatti hann í sinni baráttu,“ Berglind segir að margir hafi tárast á því augnabliki.

„Myndlistarfélag Árnessýslu þakkar af heilum hug öllum sem komu, studdu og tóku þátt, gestum, listafólkinu sem gaf verkin sín og sjálfboðaliðum sem héldu utan um daginn. Framlagið skiptir sköpum og félagið er stolt af þeirri samstöðu sem samfélagið sýndi.“
Enn eru nokkur verk til sölu á heimasíðu félagsins fyrir þá sem vilja leggja sitt af mörkum, það verður út vikuna inni á www.myndlistin.is
Þeir sem vilja styrkja beint er bent á að leggja inn á reikning móður Hinriks:
Reikningsnúmer: 0325-26-9092
Kennitala: 160692-2789

