0.6 C
Selfoss

Stækkun og endurbætur á húsnæði samþykkt

Vinsælast

Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir samþykkti framkvæmdir um stækkun og endurbætur fyrir sjúkrahúsþjónustu og heilsugæslu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Reist verður rúmlega 5.200 fermetra viðbygging til að mæta aukinni húsnæðisþörf og farið í gagngerar endurbætur og endurskipulagningu á meiri hluta eldra húsnæðis stofnunarinnar.

Fyrsti áfanginn felst í endurnýjun og stækkun húsnæðis heilsugæslu, geðteymis og heimahjúkrunar. Sá áfangi er fullfjármagnaður, heimild Samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir liggur fyrir og því unnt að hefja vinnu við hann strax. Áætlað að ljúka framkvæmdum við fyrsta áfangann um mitt ár 2027.

,,Þessar fréttir eru svo sannarlega gleðiefni. HSU þjónar stóru og fjölbreyttu svæði og hefur starfsemi stofnunarinnar vaxið hratt samhliða fjölgun íbúa og aukinni umferð ferðamanna. Fyrirhugaðar framkvæmdir skipta því miklu máli, ekki bara fyrir húsnæðið sjálft, heldur fyrir þá þjónustu sem við viljum af heilum hug geta veitt til framtíðar.“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Íbúum á Suðurlandi hefur fjölgað hratt á síðustu árum og álag á heilbrigðisþjónustu hefur aukist vegna mikillar ferðaþjónustu og umfangsmikillar frístundabyggðar. Samkvæmt frumathugun þarf að fjölga sjúkrastofum úr 20 í allt að 40. Þá þarf að endurskipuleggja og/eða stækka húsnæði bráðamóttöku, göngudeilda, myndgreiningar, rannsókna, fæðingarþjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, heilsugæslu, heimahjúkrunar og skrifstofu yfirstjórnar. Heildarþörf húsnæðis er metin um 11.000 m² en er nú um 8.800 m². Starfsmenn HSU eru nú um 850 í 604 stöðugildum en áætlað er að þeim fjölgi um allt að 20% á næstu tíu árum. 

Áfangaskipting heildarframkvæmda
1. áfangi: Endurbætur á vesturálmu undir heilsugæslu á 1. hæð og heilsugæslu og geðheilsuteymi á 2. hæð.
2. áfangi, ný norðurálma: Nýbygging fyrir legudeildir, bráðamóttöku, myndgreiningu, fæðingarþjónustu og mæðravernd, alls 5.240 m².
3. áfangi: Endurbætur á austurálmu; göngudeildir, skrifstofur, mötuneyti og kjallari.

Áætlaður heildarkostnaður allra þriggja áfanganna á stigi frumathugunar nemur á bilinu 8,5 til 13 milljörðum króna (vikmörk -15% til + 30%). Í tímaáætlun Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE) er gert ráð fyrir að öllum framkvæmdum gæti verið lokið árið 2034.

Nýjar fréttir