Laugardaginn 31. janúar 2026 kl. 19:00 verður haldið þorrablót og hagyrðingakvöld á Hestakránni, þar sem landsþekktir hagyrðingar etja kappi í kveðskap og skemmtilegum orðaleik.
Á svið stíga Magnús Halldórsson frá Hvolsvelli og Helgi Björnsson frá Snartarstöðum, ásamt Dagbjarti Dagbjartssyni og Þórdísi Sigurbjörnsdóttur frá Hrísum. Þau munu flytja gamansamar og beittar vísur sem skapa sannkallaða þorrablótsstemningu, með hlátri, þjóðlegri gleði og góðum félagsskap í fyrirrúmi.
Helga Margrét Friðriksdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Hestakráarinnar, segir markmiðið vera að halda þjóðlegum hefðum á lofti. „Við ætlum að bjóða upp á alvöru þorramat ásamt saltkjöti og hangikjöti fyrir þá sem það kjósa. Við viljum bjóða sunnlendinga og aðra landsmenn velkomna á viðburð sem sameinar mat, drykk og kveðskap á þorranum,“ segir Helga. Hún bætir við að hugmyndin sé að skapa notalega upplifun sem henti bæði einstaklingum og minni hópum sem vilja njóta þorrablóts í góðum félagsskap.


