-0.3 C
Selfoss

Andri Már slær íslandsmet

Vinsælast

Andri Már Óskarsson Umf. Selfossi setti í síðustu viku þann 8. Janúar síðastliðinn íslandsmet í 13 ára flokki í 2000 metra hlaupi. Andri Már hljóp á tímanum 7:42,56  og bætti þar með 18 ára gamalt Íslandsmet í greininni í 13 ára flokki, en metið átti Kolbeinn Höður Gunnarsson úr UFA og var 8:07,14 mín.

Tími Andra Más er einnig HSK met í 13 ára og 14 ára flokki og bæting á tveggja ára gömlu HSK meti Sæmundar Inga Jónssonar Íþróttafélaginu Garpi í flokki 15 ára, 16-17 ára, 18-19 ára, 20-22 ára og karlaflokki. Met Sæmundar Inga var 9:35,50 mín. Mótið sem Andri Már keppti á var haldið í Kaplakrika í Hafnarfriði og var fyrsta mótið í Nike mótaröðinni 2026.

Nýjar fréttir