Laugardaginn 10. janúar fór fram hátíðleg athöfn þar sem Rangárþing ytra heiðraði íþróttafólk sveitarfélagsins fyrir framúrskarandi árangur og öflugt starf á árinu 2025. Þar var kastljósinu beint að þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa náð glæsilegum árangri á íþróttasviðinu og jafnframt verið öðrum til fyrirmyndar.
Veittar voru viðurkenningar fyrir íþróttaafrek í ýmsum íþróttagreinum, þar sem hópur af efnilegu íþróttafólki frá Rangárþingi ytra fékk viðurkenningu fyrir íþróttaafrek sín.
Meistaraflokkur KFR átti sögulegt tímabil með að fara upp um deild og fékk því viðurkenningu fyrir framúrskarandi liðsárangur. Guðmundur Jónasson tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd Meistaraflokks KFR.
Þá var einnig horft til þeirra sem unnu framúrskarandi störf í þágu íþrótta- og tómstundastarfs 2025. Það voru þau Jónína Lilja Pálmadóttir fyrir uppbyggingu hestafimleika á Hellu og Viðar Rúnar Guðnason fyrir öflugt starf hjá Skyttunum og uppbyggingu barna- og unglingastarfs.
Heiðursverðlaun Rangárþings ytra hlaut Dagný Brynjarsdóttir fyrir einstakan knattspyrnuferil og fyrirmyndarhlutverk.
Að lokum voru valin íþróttakona og íþróttamaður ársins 2025. Jón Ársæll Bergmann hestaíþróttamaður er íþróttamaður ársins 2025. Helga Fjóla Erlendsdóttir frjálsíþróttakona er íþróttakona ársins 2025.



Rangárþing ytra lýsir miklu stolti af sínu íþróttafólki og horfir bjartsýnt til nýs og spennandi íþróttaárs.


