Framsóknarfélag Árborgar mun í byrjun mars halda lokað prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninga 2026, þar sem kosið verður um þrjú efstu sæti listans. Kosningin fer fram rafrænt og stendur yfir í sólarhring. Atkvæðisrétt í prófkjörinu hafa þeir, sem eru skráðir félagar í Framsóknarfélagi Árborgar 30 dögum fyrir kjördag. Niðurröðun sæta á lista verður framkvæmd samkvæmt reglum Framsóknarflokksins.
Hafin er vinna við skipan kjör- og málefnanefndar og verður auglýst eftir frambjóðendum á lista.


