2.9 C
Selfoss

Aðventuhátíð að Laugalandi í Holtum

Vinsælast

Kvenfélagið Eining í Holtum stendur fyrir árlegri aðventuhátíð félagsins fyrsta sunnudag í aðventu, þann 30. nóvember nk. kl. 13:00 – 16:00. Hátíðin er haldin að Laugalandi í Holtum.

Á hátíðina kemur handverksfólk víða af Suðurlandi og býður vörur sínar til sölu. Foreldrafélag leikskólans á Laugalandi verður með sinn árlega kökubasar og rithöfundarnir Harpa Rún Kristjánsdóttir og Fanney Hrund Hilmarsdóttir, báðar búsettar í Rangárþingi ytra, lesa úr nýútkomnum bókum sínum og hægt verður að versla bækur beint af þeim. Grétar í Áshól, harmonikkuleikari, spilar fyrir gesti og mögulega láta söngfuglar úr nærsveitinni sjá sig.

Kvenfélagið verður með sína vinsælu hlutaveltu til styrktar barnasjóði Einingar (engin núll!) auk þess að vera með kaffisölu og fer það sem safnast til góðra málefna.

Á staðnum verður úrval vel lesinna bóka sem gestir eru hvattir til að skoða og taka með sér heim til lestrar / eignar. Þeir sem vilja losa um pláss í bókaskápnum geta tekið löngu lesnar bækur með sér á aðventuhátíðina og leyft öðrum að njóta þeirra.

Síðast, en ekki síst, þá mun séra Gunnbjörg Óladóttir segja nokkur orð áður en kveikt verður á jólatréi Laugalandsskóla kl. 15:00.

Aðventuhátíðin að Laugalandi er fastur liður í jólaundirbúningi margra Sunnlendinga, enda gefst þarna gott tækifæri til að versla einstakar jólagjafir og eiga góða stund með fjölskyldu og vinum í aðdraganda jóla.

Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir!

Nýjar fréttir