Fimmtudaginn 20. nóvember kl. 17 verður upplestur fyrir yngstu börnin í Bókakaffinu á Selfossi. Harpa Rún Kristjánsdóttir mun þar lesa úr bók sinni Hver á mig?
Bókin fjallar um folald sem alist hefur upp í hænsnakofa og getur ekki hagað sér eins og kjúklingur. Folaldið heldur því út í heiminn til að reyna að finna út hvert það er.
Þetta er fjórða bók Hörpu Rúnar en hún hefur áður sent frá sér ljóðabækur og skáldsögu. Boðið verður upp á ókeypis kakó og jólatilboð verður á öllum barna- og unglingabókum.

