2.9 C
Selfoss

Inga Lára og Magnús Karel hljóta Menningarviðurkenningu Árborgar 2025

Vinsælast

Mikil gleði og ánægja braust út í sal Varðveisluhúss Byggðasafns Árnesinga í gær, þegar hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson hlutu Menningarviðurkenningu Árborgar 2025. Viðurkenningin var veitt fyrir fullu húsi í kjölfarið á vel lukkuðum viðburði þeirra hjóna þar sem þau sögðu frá nýútkominni bók um horfin hús á Eyrarbakka, rannsóknarvinnu sinni og niðurstöðum.

Mynd: Aðsend.

Inga Lára og Magnús eru vel að þessum heiðri komin enda hafa þau á undanförnum áratugum auðgað menningarlíf í sveitarfélaginu svo sómi er að. Má hér nefna ljósmyndasýningar, sögugöngur, bókaútgáfu og síðast en ekki síst Laugabúð, og er þó alls ekki allt upp talið.

Það var einróma ákvörðun bæjarráðs að veita þeim hjónum þessa viðurkenningu í ár og þakka þeim um leið fyrir þeirra ómetanlega menningarstarf í þágu samfélagsins.

Verðlaunagripurinn var handtálguð Lóa eftir myndlistarmanninn Hafþór Ragnar Þórhallsson.

Mynd: Aðsend.

Nýjar fréttir