2.9 C
Selfoss

Humarpítsa

Vinsælast

Ásdís Evarsdóttir er sunnlenski matgæðingur vikunnar.

Ég vil byrja á að þakka mömmu fyrir áskorunina og læt mitt ekki eftir liggja. Hér deili ég uppskrift að humarpizzu sem hefur oft verið á boðstólum þegar góða gesti ber að garði.

Humarpítsa

  • 1 skammtur pizzadeig
  • Ca. ½ dós rjómaostur
  • 1 dós tómatpúrra (um 140 g)
  • 1 pakki skelflettur humar
  • 25 g smjör
  • 3–4 hvítlauksgeirar
  • Pizzaostur
  • Parmesanostur
  • Ferskt basilika

Hitið ofninn í 200°C.

Fletjið pizzadeigið út og færið á bökunarplötu. Blandið saman rjómaosti og tómatpúrru og smyrjið á deigið. Dreifið pizzaosti yfir og bakið pizzuna í um það bil 15 mínútur.

Á meðan er smjör brætt á pönnu og hvítlaukurinn pressaður út í. Humarinn hreinsaður og eldaður upp úr hvítlaukssmjörinu.

Takið pizzuna út eftir 15 mín, dreifið humrinum yfir og látið hann bakast með í um það bil 5 mín til viðbótar.

Að lokum er pizzan tekin úr ofninum, parmesanostur rifinn yfir og ferskum basilblöðum sáldrað ofan á.

Rennur svo best niður með eðal hvítvíni í góðum félagsskap.


Að lokum skora ég á Sigríði Ósk Harðardóttur þar sem hún er ein mesta sælkerakona sem ég þekki og á pottþétt einhverja góða uppskrift fyrir okkur hin að njóta.

Nýjar fréttir