3.5 C
Selfoss

180 ára afmæli Búrfellskirkju fagnað í blíðskaparveðri

Vinsælast

180 ára afmæli Búrfellskirkju var fagnað með hátíðlegri guðsþjónustu 10. ágúst síðastliðinn. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur, prédikaði og þjónaði við athöfnina á meðan Matthías Harðarson dómorganisti stýrði safnaðarsöng. Sturla Jónsson gegndi hlutverki hringjara og Sigurður Böðvarsson var meðhjálpari. Elísa Schram og Anna Ýr fluttu ritningarlestra og Laufey Böðvarsdóttir kynnti í stuttu máli sögu kirkjunnar.

Ljósmynd: GOGG.

Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, flutti ávarp fyrir hönd sveitarstjórnar og afhenti kirkjunni gjöf – glæsilegan garðbekk úr graníti frá Steinsmiðju Akureyrar. Bekkurinn er tákn um styrk, festu og samveru, þau gildi sem kirkjan hefur staðið fyrir í gegnum tíðina. Með gjöfinni vill sveitarstjórnin leggja sitt af mörkum til að styrkja kirkjuna sem samkomustað íbúa, jafnt í gleði sem sorg.

Að guðsþjónustu lokinni bauð Lísa Thomsen kirkjubóndi til kaffisamsætis að Búrfelli. Velunnarar kirkjunnar voru hvattir til að mæta og fagna þessum merka tímamótum, sem heppnuðust afar vel.

Ljósmynd: GOGG.

Nýjar fréttir