2.9 C
Selfoss

Um 80 keppendur frá HSK á Unglingalandsmóti UMFÍ

Vinsælast

Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina og þetta var í þriðja sinn sem mótið er haldið þar. Rúmlega 1.000 keppendur voru skráðir á mótið og komu 82 þeirra frá HSK.
Það var glæsilegur HSK-hópurinn sem gekk inn á völlinn á setningarhátíð mótsins, en allir keppendur sambandsins fengu að gjöf bláa HSK-treyju merkta HSK og Arion banka. Bankinn er aðalstyrktaraðili HSK og samstarfið ein aðalforsenda þess að hægt sé að afhenda treyjuna endurgjaldslaust.

Keppendur HSK unnu unglingalandsmótstitla í níu mismunandi íþróttagreinum. Hér að neðan er getið um Unglingalandsmótsmeistara af sambandssvæðinu.

Unglingalandsmótsmeistarar HSK:

Fimleikar
Fimleikalið af sambandssvæðinu, sem kallaði sig Ice girls, urðu Unglingalandsmótsmeistarar í flokki 11-14 ára. Í liðinu voru vinkonurnar Andrea Sjöfn Óskarsdóttir, Ásta Kristín Ólafsdóttir, Bergþóra Hauksdóttir og Stella Natalía Ársælsdóttir.

Frjálsar íþróttir

Keppendur HSK unnu 16 unglingalandsmótstitla í frjálsum á mótinu. Margir voru að bæta sinn persónulega árangur, þótt engin HSK-met hafi verið bætt að þessu sinni.

Nikulás Tumi Ragnarsson varð Unglingalandsmótsmeistari í kúluvarpi í 11 ára flokki stráka.

Í 14 ára flokki vann Ásta Kristín Ólafsdóttir titil í spjótkasti stúlkna og Birkir Aron Ársælsson vann spjótkastið í sama aldursflokki pilta.

Anna Metta Óskarsdóttir varð þrefaldur unglingameistari í 15 ára flokki, vann 200 metra hlaup, hástökk og þrístökk. Adda Sóley Sæland vann langstökk og kúluvarp í sama aldursflokki.

Í flokki 16-17 ára vann Kristján Kári Ólafsson kringlukast og sleggjukast. Helgi Reynisson stökk lengst allra í langstökki og Bryndís Embla Einarsdóttir bætti við titlasafn sitt í spjótkasti.

Í elsta aldursflokknum varð Ísold Assa Guðmundsdóttir fjórfaldur meistari, vann 100 metra hlaup, hástökk, þrístökk og kúluvarp. Daníel Smári Björnsson tryggði sér titilinn í þrístökki í 18 ára aldursflokknum.

Glíma

Aron Logi Daníelsson varð landsmótsmeistari í glímu í flokki 13-14 ára stráka.

Golf

Freyja Ósk Ásgeirsdóttir varði titil sinn frá því í fyrra, en hún varð meistari í golfi í 14-15 ára flokki stúlkna.

Grashandbolti
Strumparnir voru öflugir í flokki stráka 11-12 ára, en tvö lið með því nafni tóku þátt í nokkrum greinum á mótinu. Strumparnir 2 urðu landsmótsmeistarar í grashandbolta og þeir sem skipuðu liðið voru þeir Birkir Rafn Ingason, Dagur Ágústsson, Dagur Rafn Gunnarsson, Hafsteinn Ingi Magnússon, Leó Hrafn Daníelsson og Tómas Otrason.

Knattspyrna

Strumparnir 2 urðu unglingalandsmótsmeistarar í knattspyrnu í flokki 11-12 ára. Í sigurliðinu voru þeir Birkir Rafn Ingason, Dagur Rafn Gunnarsson, Hafsteinn Ingi Magnússon, Leó Hrafn Daníelsson og Tómas Otrason.

Krakkahreysti

Krakkahreysti var ný grein á mótinu. Þar áttum við sigurvegara, en þær Ástdís Lilja Guðmundsdóttir og Ísold Edda Steinþórsdóttir, sem kölluðu lið sitt Ice girls, unnu í flokki 11-12 ára stúlkna.

Kökuskreytingar

Í þessari vinsælu grein stóðu HSK-krakkarnir sig vel. Í einstaklingskeppninni í flokki 11 – 12 ára varð Linda Björk Smáradóttir unglingalandsmótsmeistari og Andrea Sjöfn Óskarsdóttir sigraði í flokki 13 – 14 ára. Í liðakeppni í flokki 13 – 14 ára vann liðið Meistararnir titil. Liðið skipuðu þær Ásta Kristín Ólafsdóttir og Stella Natalía Ársælsdóttir.

Sund

Í sundi vann Arnór Karlsson tvo titla, en hann varð meistari í 50 metra baksundi og 100 metra skriðsundi í flokki 15 – 16 ára pilta.

Vinkonurnar í Icegirls, þær Andrea Sjöfn Óskarsdóttir, Ásta Kristín Ólafsdóttir, Bergþóra Hauksdóttir og Stella Natalía Ársælsdóttir, urðu Landsmótsmeistarar í 4×50 m skriðsundi stúlkna.

Hér er ekki getið um þá fjölmörgu sem unnu silfur og brons í ofantöldum greinum. Keppendur frá HSK unnu að auki til verðlauna í borðtennis, frisbígolfi, grasblaki, hjólreiðum, körfuknattleik, pílukasti og stafsetningu. Krakkarnir kepptu einnig í skák og motocross og voru nærri verðlaunasætum. Þá eru þrjár keppnisgreinar ótaldar, en enginn þátttakandi af sambandssvæðinu keppti í rafíþróttum, skák og upplestri.

Úrslit greina má nálgast á www.umfi.is.

Ef lesendur vita um fleiri Unglingalandsmótsmeistara af sambandssvæðinu eru þeir beðnir um að senda upplýsingar á hsk@hsk.is.

Nýjar fréttir