Þriðja umferð Íslandsmótsins í Motocross fór fram á Höfn í Hornafirði. Er þetta í fyrsta skipti sem haldið er Íslandsmót á Höfn í Hornafirði á vegum ASK. Rúmlega 55 keppendur voru skráðir til leiks og var hörð samkeppni í öllum flokkum. Iðkenndur UMFS stóðu sig heldur betur vel, Alexander Adam sigraði flokkinn MX1 og Eric Máni sigraði flokkinn MX2 og leiða þeir báðir Íslandsmótið í sínum flokkum.
Fjórða umferð Íslandsmótsins í motocross fer fram á Akureyri 9. ágúst næstkomandi.
Fréttatilkynning frá UMFS
Hér má sjá úrslit dagsins.
MX1 flokkur
Alexander Adam Kuc
Ingvar Sverrir Einarsson
Hjálmar Jónsson
MX2 flokkur
Eric Máni Guðmundsson
Alex Þór Einarsson
Björgvin Jónsson
Kvennaflokkur (opin flokkur)
Eva Karen Jóhannsdóttir
Kristín Ágústa Axelsdóttir
Björk Erlingsdóttir
Unglingaflokkur (aldur 14-18 ára, 144-125cc tvígengis)
Arnór Elí Vignisson
Andri Berg Jóhannsson
Máni Bergmundsson
MX2 – Unglinga (aldur 14-18 ára, 250cc fjórgengis):
Sigurður Bjarnason
Tristan Berg Arason
Stefán Ingvi Reynisson
85 cc flokkur (aldur 12-14 ára):
Olivier Cegielko
Halldór Sverrir Einarsson
Ánri Þór Steinþórsson
65 cc flokkur (aldur 10-12 ára):
Viktor Ares Eiríksson
Máni Mjölnir Guðbjartsson
Magnús Tumi Hilmarsson

