3.4 C
Selfoss

Uppbygging heldur áfram í Tjarnabyggð

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg og Ólafshagi ehf. hafa gert samkomulag um uppbyggingu fjórða áfanga í Tjarnabyggð sem er svokölluð „frístundabyggð“ rétt utan við Selfoss. Það voru Bragi Bjarnason bæjarstjóri og Ólafur Haraldsson eigandi Ólafshaga sem skrifuðu undir samkomulagið sem byggir á eldri samningi frá árinu 2005 um uppbyggingu Tjarnabyggðar.

Uppbygging í Tjarnabyggð hófst árið 2006 og því miður hægðist á uppbyggingu svæðisins í kjölfar efnahagsástandsins árin þar á eftir. Undanfarin ár hafa hins vegar risið fjöldi húsa á lóðunum og íbúum fjölgað samhliða. Samkomulagið felur í sér uppbyggingu fjórða áfanga svæðisins sem inniheldur um 66 byggingalóðir í 11 klösum þar sem 6 byggingarlóðir eru í hverjum klasa. Í samræmi við samkomulagið verður uppbyggingin í áföngum þar sem að lágmarki verða byggð fjögur íbúðarhús í hverjum klasa áður en byrjað er á næsta klasa. Áætlað er að framkvæmdir við gatnagerð hefjist fljótlega og í kjölfarið fyrsta klasanum við Norðurslóð. Landeigandi leggur auk þess til svæði undir grenndarstöð og leiksvæði/opið svæði sem nýtist íbúum hverfisins.

Sveitarfélagið Árborg

Bragi Bjarnason og Ólafur Haraldsson. Ljósmynd: Sveitarfélagið Árborg.
Bragi Bjarnason og Ólafur Haraldsson. Ljósmynd: Sveitarfélagið Árborg.

Nýjar fréttir