11.4 C
Selfoss

Uppskáru vel eftir góðan vetur

Vinsælast

Helgina 24. – 26. maí fór fram Íslandsmót í hópfimleikum og jafnframt síðasta mót vetrarins.

Liðin frá fimleikadeild Selfoss áttu frábæra helgi og uppskáru vel eftir góðan vetur.

Á föstudaginn keppti meistaraflokkur en það var virkilega gaman að sjá liðið en þær hafa ekki keppt síðan síðastlið haust. 
Liðið var mjög sterkt, keyrðu mikinn erfiðleika og gerðu hreinar æfingar.
Þær uppskáru 3. sætið á gólfi og trampólíni og voru jafnar Gerplu í 2. sæti á dýnu eftir frábærar æfingar þar sem öll stökk voru lent. Samanlagt voru þær í 3. sæti, 0,55 stigum frá 2. sætinu. Þær blönduðu sér vel í baráttuna og verður gaman að sjá liðið koma sterkt inn á næsta tímabil.

Meistaraflokkur 3. sæti.

Á laugardeginum keppti 3. flokkur í tveimur liðum í sitthvorri deildinni, A og B deild. Liðið sem keppti í B-deild hafa verið í miklum framförum í vetur en einhverjir hnökrar voru á æfingunum í keppni og þær náðu ekki alveg að skila öllu sínu. Þær lentu í 5. sæti í deildinni og geta vel við unað.

3. fl B íslandsmót.

Liðið sem keppti í A-deild, átti gott mót heilt yfir og skiluðu sínum æfingum vel. Þær voru í 2. sæti á dýnu, 3. sæti á gólfi og í 3. sæti samanlagt og var gaman að sjá þær uppskera eftir mikla vinnu í vetur.

3. fl A íslandsmót 3. sæti.

Laugardeginum var síðan lokað með frábærri frammistöðu 1. flokks þar sem þær sýndu framúrskarandi æfingar, lentu öll sín 36 stökk og sýndu stórglæsilegar gólfæfingar. Niðurstaðan var Íslandsmeistaratitill á öllum áhöldum og í samanlögðum árangri – svo sannarlega verðskuldaður árangur hjá liði sem hefur lagt mikið á sig íæfingum í vetur.

1. fl íslandsmeistarar.

2. flokkur mix lokaði síðan helginni á sunnudeginum. Enn er liðið ekki að keppa við nein önnur lið en á mótinu sáust miklar framfarir sem liðið hefur náð í vetur og gaman að sjá hvað liðið leggur mikið á sig þrátt fyrir enga samkeppni. Liðið stóð uppi sem Íslandsmeistarar í 2. flokki blandaðra liða.

Selfoss mix íslandsmeistarar.

Hjartanlega til hamingju með frábæran árangur helgarinnar, uppbyggingin er svo sannarlega að skila sér og framtíðin er björt – Áfram Selfoss!

Fimleikadeild UMFS

Nýjar fréttir