6.1 C
Selfoss

Vor í Skálholti – Menning á miðvikudögum í maí

Vinsælast

Verið velkomin í fræðslu- og menningargöngur í Skálholti á miðvikudögum í maí. Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Laugardagur 4. maí kl 9:30

Fuglar í landi Skálholts – Fræðslu og söguganga um Skálholtstungu. Tómasi Grétari Gunnarssyni fuglafræðingi leiðir gönguna og fræðir gesti um fuglalíf í Skálholti. Gengið er um Skálholtstungu og fuglalífið skoðað. Kristján Björnsson Vígslubiskup verður með í för og fræðir gesti um sögu Skálholtsstaðar. Gangan tekur um 1,5 – 2 klst og er öll á jafnsléttu. Gangan hefst við Skálholtsbúðir og gengið verður niður Skálholtstungu. Mæting í Skálholtsbúðum.

Miðvikudagur 8. maí kl 18:00

Þorláksleið vígð – Fræðslu og söguganga um Þorlák helga Þórhallsson. Ný Þorláksleið um Skálholtsjörð vígð, en leiðin hefur verið vörðuð með skiltum. Kristján Björnsson vígslubiskup leiðir gönguna og fræðir gesti um Þorlák helga Þórhallsson. Mæting við kirkjuna

Miðvikudagur 15. maí kl 18:00

Ragnheiðarganga – fræðslu- og söguganga um Ragnheiði Brynjólfsdóttur úr Skálholti. Friðrik Erlingsson leiðir Ragnheiðargöngu um Skálholt og fer yfir ástir og örlög Ragnheiðar. Mæting við kirkjuna.

Miðvikudagur 22. maí kl 18:00

Bjarni Harðarson leiðir göngu um Skálholtsstað og fer yfir sögu og sögupersónur Skálholtsstaðar. Gangan verður að hluta á ensku. Mæting við kirkjuna.

Miðvikudagur 29. maí kl 18:00

Halldóra Kristinsdóttir frá Landsbókasafni fræðir gesti um Valgerði Jónsdóttur biskupsfrú. Fyrirlestur inni í kirkjunni og gengið um safn í kjallara kirkjunnar. Mæting í kirkjunni.

Vor í Skálholti – Tónleikar í Skálholtskirkju í maí

Föstudagur 3. maí kl 18:00

Ása og Ásta Soffía – Dægurflugur og tangó. Aðgangseyrir rennur í Flygilsjóð Skálholtskirkju. Miðasala á Tix.is og við innganginn

Laugardagur 4. maí kl 17:00

Vortónleikar Karlakórs Selfoss – Vönduð og skemmtileg dagskrá. Miðasala við innganginn

Sunnudagur 5. maí kl 13:00

Sellóveisla með Sellósveitinni Rúnu – Klassík í bland við rokk og spuna. Aðgangur ókeypis

Sunnudagur 5. maí kl 20:00

Vortónleikar Kórs Fjölbrautaskóla Suðurland – Skemmtileg vordagskrá. Stjórnandi Stefán Þorleifsson

Laugardagur 11. maí kl 13:30

Samsöngur Kóra eldri borgara – 5 kórar koma saman og syngja. Samsöngurinn stendur frá 13:30 – 17:00 og er opin æfing þar sem gestir mega koma og hlýða og njóta. Aðgangur ókeypis

Veitingastaðurinn Hvönn í Skálholti verður opinn allan daginn og eru gestir hvattir til að koma og kynna sér nýjan matseðil

Nánari upplýsingar má nálgast hér.

Skálholt

Nýjar fréttir