4.5 C
Selfoss

Geir Sveinsson lætur af störfum sem bæjarstjóri

Vinsælast

Meirihluti bæjarstjórn Hveragerðisbæjar og Geir Sveinsson bæjarstjóri hafa komið sér saman um tillögu að starfslokasamningi Geirs. Tillagan verður lögð fyrir fund bæjarstjórnar kl. 8:00 á föstudaginn kemur, 22. mars.

Starfsfólk á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar var upplýst í morgun um að tillagan verði lögð fram.

Nánari upplýsingar verða veittar eftir bæjarstjórnarfund á föstudaginn.

Nýjar fréttir