4.5 C
Selfoss

Helga Fjóla og Bryndís Embla bikarmeistarar

Vinsælast

Bikarkeppni FRÍ 15 ára og yngri fór fram í Kaplakrika þann 17. mars. HSK sendi bæði A og B lið kvennalið til keppninnar og A karlalið. Lið HSK endaði  í 5. sæti heildarstigakeppninnar en það var lið ÍR sem sigraði bikarkeppnina. A Kvennalið HSK endaði í 2. sæti en B liðið í 9. sæti. A karlaliðið lenti í 8. sæti.

Helga Fjóla Erlendsdóttir varð tvöfaldur bikarmeistari. Hún sigraði í 60 m grindahlaupi á tímanum 9,35 sek. og hún stökk hæst allra í hástökki þegar hún vippaði sér yfir 1.61 m

Bryndís Embla Einarsdóttir varð bikarmeistari í kúluvarpi er hún varpaði kúlunni 11,13 m.

Anna Metta Óskarsdóttir fékk tvenn silfurverðlaun. Í 60 m hlaupi bætti hún sinn besta árangur þegar hún kom í mark á timanum 8,39 sek. og í langstökki stökk hún 4,74 m.

Bryndís Halla Ólafsdóttir hljóp 1500 m á tímanum 5:36,86 mín. og vann til silfurverðlauna og boðhlaupssveit HSK/Selfoss vann til bronsverðlauna í 4×200 m boðhlaupi er þær hlupu á tímanum 1:54,15 mín. Sveitina skipuðu þær Anna Metta Ólafsdóttir, Helga Fjóla Erlendsdóttir, Arndis Eva Vigfúsdóttir og Adda Sóley Sæland

Fjölmargir voru að bæta sinn besta árangur og stóðu sig mjög vel þrátt fyrir að ná ekki á verðlaunapallinn. Magnús Tryggvi Birgisson bætti  sinn besta árangur í 60m hlaupi er hann kom í mark á tímanum 8,91 sek. Hróbjartur Vigfússon bætti sinn besta árangur í 300m hlaupi er hann hljóp á tímanum 59,37 sek.  Eðvar Eggert Heiðarsson hljóp 60 m grind á timanum 11,77 sek. og bætti sinn besta árangur. Kári Sigurbjörn Tómasson bætti sinn besta árangur í hástökki um 9 cm er hann vippaði sér yfir 1.40 m og  Björgvin Guðni Sigurðsson bætti sinn besta árangur í kúluvarpi er hann varpaði kúlunni 9,96 m.

HSK

Nýjar fréttir