7.8 C
Selfoss

Bráðabana frá bronsverðlaunum

Vinsælast

Sunnlendingurinn Valgerður Einarsdóttir Hjaltested úr BFB Kópavogi lauk á mánudag keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu, þar sem hún endaði í 4. sæti í liðakeppni og 9 sæti einstaklingskeppni.

Valgerður komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM í síðustu viku. Hún skoraði nægilega hátt til þess að sitja hjá í leikjum og fara beint í 16 manna úrslit.

Sveigboga kvenna liðið, sem Valgerður var partur af, var hársbreidd frá því að tryggja sér brons verðlaunin á EM í brons úrslitaleik sem endaði jafn 4-4 gegn Moldóvu. Bráðabana þurfti til þess að brjóta jafnteflið og ákvarða hvort liðið hreppti bronsið, en þar hafði Moldóva betur á síðustu örinni. Íslenska liðið endaði í 4 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð í sveigboga kvenna.

Nýjar fréttir