8.9 C
Selfoss

Hveragerðisbær semur við Listasafn Árnesinga

Vinsælast

Hveragerðisbær og Listasafn Árnesinga undirrituðu í gær nýjan þjónustusamning sín á milli. Samningurinn, sem hefur það meginmarkmið að auka samstarf Hveragerðisbæjar og Listasafnsins og efla þar með menningarstarf, sýningahald og safnastarf í bænum, er til þriggja ára og felur í sér 17.880.000 kr. framlag frá Hveragerðisbæ til safnsins á samningstímanum.

Samningurinn fellur að stefnu Hveragerðisbæjar þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að unnið sé með sérstöðu bæjarins á sviði lista og að byggð sé upp skapandi menning í bænum.

Hveragerðisbær mun annast umhirðu lóðar safnsins á samningstímanum og veita ráðgjöf vegna viðhalds á húsnæði safnsins. Að auki greiðir bærinn fasteignagjöldin fyrir safnið. Listasafnið mun meðal annars standa fyrir námskeiðum um myndlist, söfn og safnastarf fyrir börn og unglinga í Hveragerði, bjóða grunnskólanemum á sýningar í safninu og veita dvalargestum í listamannahúsinu Varmahlíð vinnuaðstöðu ef mögulegt er.

Nýjar fréttir