7.3 C
Selfoss

Garðfuglahelgin 2024

Vinsælast

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Að þessu sinni verður Garðfuglahelgin 26-29 janúar. 

Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Ekki má leggja saman. Þetta er til að forðast tvítalningar á sama fuglinum, sem ef til vill kemur á 15 mínútna fresti í garðinn. Þá er hann skráður sem 1 fugl ekki 4.

Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður t.d. rafrænt á vef Fuglaverndar www.fuglavernd.is. Ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá er gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein. Auðnutittlingar þiggja eingöngu fræ t.d. sólblómafræ en starar þiggja alls konar fóður. 

Nánari upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vef Fuglaverndar og í Garðfuglabæklingi félagsins sem kaupa má í vefverslun á www.fuglavernd.is sem og fóðurhús og fóður sem selt er til styrktar félaginu.

Minnt er á að fólk þarf ekki endilega að eiga garð til að gefa og telja fugla í heldur er hægt að koma sér fyrir í almenningsgarði en slíkir eru víða í sveitarfélögum landsins og þar er hægt að vera í fuglaskoðun og telja fugla.  

Nýjar fréttir