8.9 C
Selfoss

Lokadagur sýninganna í safninu og sérviðburður með Jakobi Veigar

Vinsælast

Listasafn Árnesinga býður gesti velkomna á listamannaspjall með Jakobi Veigar Sigurðssyni klukkan 14:00 þann 22. desember nk.

Þetta er lokadagur sýningarinnar og ýmislegt verður í boði í safninu.

Jakob Veigar (1975) starfar og býr í Vínarborg en er uppalinn í Hveragerði. Hann fetaði fremur seint inn á veg myndlistarinnar eftir að hafa snúið baki við byggingariðnaðinum og snúið sér að Myndlist. Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2016 og sem „Herr Magister“ í myndlist frá Akademie der bildenden Künste í Vínarborg 2019.

Jakob er einnig með BA gráðu í byggingatæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík. Málverkið er hans aðal miðill og er innblásið af persónulegri reynslu, alkóhólískum huga sem reynir að skilja samfélagið sem hann dvelur í á hverjum tíma ásamt djúpri tengingu hans við náttúruna.

Jakob hefur á ferðalögum á framandi slóðir m.a annars Indland og Íran notað myndlistina til að dýpka skilning og tengingu við framandi menningu.

Þrátt fyrir stutta viðkomu í myndlistinni er verk Jakobs að vinna í einkasöfnum víða um heim og hafa verk hans verið sýnd ásamt Íslandi víða um Evrópu, Kína ofl.

Eftir spjallið við Jakob mun Saleh Rozati frá Íran flytja gjörning á hefðbundna persneska Daf trommu við undirleik eigin hljóðgjörnings.

Megi hönd þín vera heil, er saga af ferðalagi frá Íslandi til Írans. Saga af listamanni sem elti ástina á milli heimsálfa á tímum heimsfaraldar. Ferðalag til einnar af elstu menningu veraldar þar sem hann fann hluta af sjálfum sér í landslagi töluvert frábrugðið hans eigins. Saga af ást sem glataðist, á meðan hann safnaði sögum og efni frá hirðingjum og handverksfólki um allt Íran. Allt frá Frá skítugum mottum, ómetanlegum vefnaði og útsaum sem hann notar til að skapa sína persónulegu og einstöku veröld.

Saleh Rozati.

Nýjar fréttir