8.4 C
Selfoss

Kveikt á trénu í Hveragerði

Vinsælast

Ljósin verða tendruð á jólatré Hveragerðisbæjar í Lystigarðinum Fossflöt á fyrsta sunnudegi í aðventu, þann 3. desember klukkan 17.

Barnakór kirkjunnar syngur, dansað verður í kringum jólatréð, Njörður Sigurðsson forseti bæjarstjórnar flytur ávarp, Unnur Birna Björnsdóttir kemur fram ásamt Jólatríói og jólasveinarnir kíkja í heimsókn úr Reykjafjalli. Kynnir er Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi.

Skátafélagið Strókur býður upp á heitt kakó í Skátaheimilinu fyrir athöfnina, klukkan 16-17, í Skátaheimilinu að Breiðumörk 22. Með kakóinu verða kleinur til sölu en kleinusalan er liður í fjáröflun fyrir ferð á landsmót sumarið 2024. Gott ef sem flestir geta tekið með sína eigin bolla undir kakóið til að lágmarka notkun einnota umbúða.

Mætum og eigum saman skemmtilega stund í byrjun aðventu!

Hveragerðisbær

Nýjar fréttir