7.5 C
Selfoss

Kynningarfundur hjá Power-Talk deildinni Jóru

Vinsælast

Power-Talk deildin Jóra verður með kynningarfund mánudaginn 18. september n.k. kl. 20 í Selinu, Eyravegi 48 á Selfossi.

Power-Talk deildin Jóra hefur starfað í yfir 30 ár og koma félagar víða að úr Árnessýslu. Með þátttöku í starfi deildarinnar þjálfum við okkur í ræðumennsku og fundarsköpum. Við æfum okkur í að gegna embættum og vera fundarstjórar, allt eftir því sem félagar treysta sér til.  Deildin er opin öllum kynjum. Starf í deildinni getur verið stökkpallur til að fara að taka þátt í félagsmálum af ýmsum toga.

Frítt inn og veitingar í hléi.  Allir velkomnir!

Power-Talk deildin Jóra

Nýjar fréttir