7.8 C
Selfoss

Ferðafólki ráðlagt að halda sig fjarri Skaftá

Vinsælast

Í uppfærslu frá Veðurstofu Íslands varðandi hlaup í Skaftá segir að rennsli Skaftár hafi aukist rólega í gærkvöldi og fram á nótt en virðist hafa verið nokkuð stöðugt við Sveinstind frá kl. 03 í nótt. Mælitæki þar sýndu rennsli upp á um 740 m3/s kl. 9 í morgun. Mælir Veðurstofunnar við Eldvatn niðri við þjóðveg 1 endurspeglar sama hæga vöxt og mælist rennsli þar nú tæplega 380 m3/s. Talsverður hluti hlaupvatnsins fer svo um þá grein árinnar sem rennur framhjá Kirkjubæjarklaustri.

Ennþá er of snemmt að segja til um að hlaupið hafi náð hámarki, þótt rennsli við Sveinstind hafi verið nokkuð stöðugt síðustu klukkustundir.

Ekki er enn hægt að segja með fullri vissu hvort upptök hlaupsins séu í Vestari eða Eystri Skaftárkatli. Hlaupferillinn minnti í fyrstu meir á þekkt hlaup úr vestari katlinum, en nýjar radarmyndir úr SENTINEL-gervitunglinu, sem Ingibjörg Jónsdóttir á Jarðvísindastofnun hefur aflað, benda til þess að sig hafi orðið í eystri katlinum

Möguleg vá:

Það er mikilvægt að íbúar og allir þeir sem leið eiga um flóðasvæðið séu meðvitaðir um þær aðstæður sem upp geta komið og að ferðamenn séu upplýstir um mögulega náttúruvá:

Næstu daga munu flóðaaðstæður ríkja við bakka Skaftár. Mögulegt er að Skaftá flæði yfir vegi sem liggja nærri árbökkum.

Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnaárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.

Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum, sem og jöðrum Skaftárjökuls og Tungnaárjökuls þar sem hlaupvatn gæti brotið sér leið upp á yfirborðið

Nýjar fréttir