6.1 C
Selfoss

Hugsanlegar kvikuhreyfingar í Kötlu

Vinsælast

Aukin skjálftavirkni hefur verið í Kötlu síðustu daga. Skömmu eftir miðnætti í nótt 30. júní  hófst hrina og klukkan 6:30 höfðu rúmlega 95 skjálftar mælst, 8 yfir 3 stig og sá stærsti 4.4. Jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli síðustu vikur er sú mesta síðan haustið 2016. Þetta segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Mælingar sýna aukningu í rafleiðni í Múlakvísl sem er nú óvenjuhá miðað við árstíma. Gasmælir á Láguhvolum sýnir aukningu í jarðhitagasi. Túlkun mælinga bendir frekar til jarðhitavirkni en ekki er hægt að útiloka kvikuhreyfingar.

Líkur eru á vatnavöxtum í Múlakvísl vegna aukins hlutfalls jarðhitavatns í ánni. Gasmengun við ána getur fylgt jarðhitavatni. Um helgina má búast við hægri breytilegri átt á svæðinu og því getur gas safnast fyrir.

Næstu daga má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli. Jarðskjálftar auka líkur á berg- og íshruni. Hefur Veðurstofa gefið út viðvörun vegna aukinna líkna á áframhaldandi jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli, gasmengun við Kötlujökul og vatnavexti í Múlakvísl.

Þá ráðleggur Veðurstofan fólki frá því að vera á ferli nærri upptökum Múlakvíslar og við Kötlujökul.

Nýjar fréttir