6.1 C
Selfoss

Svanur Vilbergsson leikur í Hlöðunni

Vinsælast

Sunnudaginn 25. júní klukkan 15:00, mun hinn glæsilegi gítarleikari Svanur Vilbergsson, halda tónleika í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð.

Á tónleikunum, sem styrktir eru af SASS mun Svanur leika verk eftir Scarlatti, Händel, Pereira og fleiri.

Svanur Vilbergsson hefur haldið einleikstónleika víða um heim, m.a. í Bandarikjunum, Hollandi, Spáni, Englandi, Belgíu og Írlandi. 

Á meðal verkefna hafa verið tónleikar á Inishowen International Guitar Festival á Írlandi, Grand Nordic Guitar Festival í Kaupannahöfn, Sommer Melbu hátíðinni í Noregi og Reykjavík Classics tónleikaröðinni í Eldborgarsal Hörpu þar sem hann varð fyrsti klassíski gítarleikarinn til að spila einleik í þeim sal. 

Svanur hefur komið fram í sjónvarpi í Bandaríkjunum og á Spáni og var valinn fyrir Íslands hönd til þátttöku í norsk-íslenska menningarverkefninu Golfstraumurinn. Spænska tónskáldið Mateu Malondra Flaquer hefur tileinkað honum verk fyrir sóló gítar og í febrúar 2014 frumflutti hann í Hörpu, ásamt Kammersveit Reykjavíkur, gítarkonsertinn Halcyon Days sem saminn var af tónskáldinu Oliver Kentish og tileinkaður Svani. 

Árið 2011 kom út fyrsti einleiksdiskur Svans sem kallast Four Works og hefur honum verið einkar vel tekið. Svanur er meðlimur í Íslenska Gítartríóinu , sem tilnefnt var til Íslensku Tónlistarverðlaunanna 2022 og Stirni Ensemble sem sem hefur sérhæft sig í flutningi á Íslenskri samtímatónlist. Hann kennir meðal annars klassískann gítarleik við Menntaskólann í tónlist og Listaháskóla Íslands.

Svanur hóf gítarnám sitt hjá Torvald Gjerde, Garðari Harðarssyni og Charles Ross við Tónlistarskóla Stöðvarfjarðar og Tónlistarskólann á Egilsstöðum. Sautján ára fór hann til Englands til náms við King Edwards VI menntaskólann í Totnes þar sem gítarkennari hans var Colin Spencer og útskrifaðist þaðan af tónlistar- og líffræðibraut árið 2001. Þaðan hélt hann til Spánar og sótti þar einkatíma hjá Arnaldi Arnarssyni við Escola Luther. 

Árið 2002 hóf Svanur nám hjá ítalska gítarleikaranum Carlo Marchione við Tónlistarháskólann í Maastricht og lauk þaðan B.Mus. gráðu vorið 2006. Sama ár hóf hann mastersnám hjá Enno Voorhorst við Konunglega Tónlistarháskólann í Haag sem hann lauk vorið 2008. Þá hefur hann einnig sótt tíma hjá Sonju Prunnbauer í Freiburg.

Nýjar fréttir